Skoðun

Fulltrúi fólksins

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar
Almenningur á sinn fulltrúa á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Póllandi. Sá er David Attenborough, maður sem almenningur þekkir að góðu einu. Er hann að því leyti frábrugðinn mörgum stjórnmálamönnum sem eru of gefnir fyrir hentistefnu og svo uppteknir við að ota eigin tota að þeir hafa lítinn tíma aflögu til að gæta að hag lands síns og þjóðar.

Attenborough hefur gert margt fyrir þennan heim. Í áratugi hefur hann ferðast til ótal landa og kynnt sér dýralíf. Hann kemur auga á dýrðina í smáum skorkvikindum jafnt sem voldugum ljónum og krókódílum. Upplifun sinni hefur hann miðlað á smitandi hátt til umheimsins í stórkostlegum dýra- og náttúrulífsþáttum. Það kann vissulega að hafa hvarflað að einhverjum sjónvarpsáhorfendum að náttúrufræðingurinn knái hafi jafnvel meira álit á dýraríkinu en mannkyninu, en jafnvel þótt svo væri er vart hægt að álasa honum. Mannkynið hefur ótalmargt á samviskunni, ekki síst það að ganga rösklega fram við að eyða lífi á jörðinni.

Forsvarsmenn loftslagsráðstefnunnar í Póllandi fengu Attenborough það hlutverk að safna sögum fólks og koma skilaboðum þess á framfæri á loftslagsráðstefnunni. Það gerði hann af þvílíkum krafti að ræða hans rataði í fjölmiðla víða um heim. Í ræðunni sagði hann algjört hrun siðmenningar blasa við og að hætta væri á gereyðingu stórs hluta náttúrunnar. Hann kom á framfæri þeim skilaboðum sem fólk víðsvegar að bað hann að koma til ráðamanna heims, sem eru þau að bregðast strax við.

Samkvæmt Attenborough, og við skulum trúa honum, er almenningur um allan heim reiðubúinn að færa fórnir í baráttunni við loftslagsbreytingar. Fólk er að missa heimili sín, náttúra eyðist, dýrategundir hverfa og fólk deyr – allt vegna loftslagsbreytinga.

Almenningur hefur áttað sig, en það nægir ekki ef ráðamenn heims aðhafast ekkert. Hálfkák er ekki í boði. Það þarf að bregðast við strax. Og þetta „strax“ er ekki teygjanlegt og órætt hugtak, heldur merkir það „samstundis“.

Harmleikur heimsbyggðarinnar í þessari baráttu er að ráðamenn heims eru of margir ábyrgðarlausir og duttlungafullir og sjá enga ástæðu til að taka mark á færustu vísindamönnum. Forseti Bandaríkjanna fer þar fremstur í flokki og á sér liðsmenn í öðrum miður geðslegum ráðamönnum, eins og nýkjörnum forseta Brasilíu. Heiminum stafar hætta af afneitun þessara manna.

Það er ekki nóg að almenningur taki mark á aðvörunum vísindamanna, það gerist sárafátt ef ráðamenn, sem hafa raunveruleg áhrif, eru ekki með í för. Þeir hafa skyldum að gegna og verða að sjá sóma sinn í að sinna þeim. Þegar við blasir hrun siðmenningar geta ráðamenn heims ekki látið eins og ekkert sé.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×