Skoðun

Bætum kjörin í Hafnarfirði

Óskar Steinn Ómarsson skrifar
Laugardaginn 1. desember síðastliðinn birti Vísir.is grein eftir Einar Freyr Bergsson, ungan Sjálfstæðismann í Hafnarfirði. Í greininni fjallar Einar um ræðu sem Stefán Már Gunnlaugsson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar, flutti í umræðum bæjarstjórnar Hafnarfjarðar um fjárhagsáætlun. Í ræðunni lagði Stefán Már til að sveitarfélagið sæki meiri tekjur með því að hækka útsvarið um 0,04 prósentustig. Þetta kallar Einar „skattablæti Samfylkingarinnar“.

Hverfandi ávinningur fyrir þau lægst launuðu

Einar hefur áhyggjur af því að með því að hækka útsvarið um 0,04 prósentustig sé verið að kreista peninga út úr fólki sem illa er statt fjárhagslega, eins og hann orðar það. Mér er bæði ljúft og skylt að skýra út fyrir Einari hvers vegna þessar áhyggjur eru óþarfar.

Um áramótin 2017 var útsvarið í Hafnarfirði lækkað úr 14,52% í 14,48%. Ávinningur þessarar breytingar fyrir tekjulægsta fólkið í bænum nam um 1.440 krónum - upphæð sem nemur einni megavikupizzu - á ári. Þeir Hafnfirðingar sem hafa tvær milljónir í mánaðarlaun fengu hins vegar um 9.600 krónur aukalega í vasann á ári. Útsvarslækkunin hagnaðist því fyrst og fremst tekjuhærra fólki í Hafnarfirði á meðan hún hafði hverfandi áhrif á veski þeirra tekjulægstu.



60 milljónir í betri þjónustu

Útsvarslækkunin hefur hins vegar talsverð áhrif á bæjarsjóð. Með því að innheimta 14,48% útsvar í stað 14,52% má gera má ráð fyrir að bærinn verði af tekjum upp á 60 milljónir króna. Með þessum aukatekjum væri hægt að gera ýmislegt fyrir þá sem lægst hafa launin í Hafnarfirði. Bærinn gæti til dæmis hækkað afslætti til öryrkja, bætt öldrunarþjónustu, fjölgað leikskólaplássum eða lækkað gjöld í skóla- og frístundastarfi barna.

Fyrir 60 milljónir væri einnig hægt að kaupa tvær félagslegar íbúðir á hverju ári. Það kæmi sér vel fyrir þá Hafnfirðinga sem berjast í bökkum á húsnæðismarkaði, en Hafnarfjörður er ekki að standa sig í uppbyggingu félagslegra íbúða í samanburði við önnur sveitarfélög. Í Reykjavík eru um 20 félagslegar íbúðir á hverja þúsund íbúa, í Kópavogi eru þær 13 en í Hafnarfirði eru aðeins átta félagslegar íbúðir á hverja þúsund íbúa. Hér þarf átak í uppbyggingu félagslegra íbúða.



Einkavæðing bitnar á fátækum

Undir lok greinarinnar leggur Einar til að dregið verði úr útgjöldum með því að einkavæða leik- og grunnskóla bæjarins. Slíkar hugmyndir eru stórhættulegar, en alls staðar þar sem slíkt hefur verið reynt hefur það leitt til meiri ójöfnuðar og bitnað á þeim tekjulægstu í samfélaginu. Ég vona að hugmyndir Ungra sjálfstæðismanna um einkavæðingu skólakerfisins nái ekki inn á borð meirihlutans í bæjarstjórn Hafnarfjarðar.

Í stað þess að færa peninga úr sjóðum bæjarins í vasa þeirra sem hæstu launin hafa vil ég að fjármunum bæjarins verði forgangsraðað í þágu þeirra sem höllustum fæti standa. Í stað þess að einkavæða grunnþjónustu vil ég að fjárfest verði í betra skólakerfi fyrir börn í Hafnarfirði. Í þessu kristallast munurinn á stefnu jafnaðarmanna og stefnu þeirra sem nú fara með völdin í bæjarstjórn Hafnarfjarðar.

Höfundur er varaformaður Ungra jafnaðarmanna.


Tengdar fréttir




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×