Skoðun

Fjárfesting til framtíðar

Kjartan Hreinn Njálsson skrifar
Fyrirhugaður niðurskurður á fjárframlögum til Rannsóknasjóðs Rannís, sem Fréttablaðið greinir frá í dag, er köld kveðja til þeirra vísindamanna sem starfa hér á landi. Í raun eru áherslur ríkisstjórnarinnar, sem birtast bæði í frumvarpi til fjárlaga og í fyrirhuguðum lagabreytingum sem heimila gjaldtöku vísindasiðanefndar, í hrópandi ósamræmi við þann mikla árangur sem náðst hefur í grunnrannsóknum og vísindum almennt hér á landi undanfarin ár og áratugi.

Ósamræmi þetta felst í þeirri staðreynd að í alþjóðlegum samanburði stendur íslenskt vísindasamfélag framarlega á mörgum af þeim sviðum sem mestu máli skipta fyrir framtíð okkar sem fullvalda og blómstrandi þjóðar, og sem tegundar. Þau grunnvísindi sem stunduð eru hér hafa ótvírætt gildi og hafa oft á tíðum beina skírskotun til krefjandi úrlausnarefna sem við munum þurfa að takast á við.

Opinbert fjármagn gegnir lykilhlutverki í öllum vísindarannsóknum. Slíkar rannsóknir krefjast þolinmæði og skilnings á því að framfarir eiga sér stað hægt en ávallt með ávinningi. Fjármagn sem sett er í rannsóknir og þróun skilar sér margfalt til baka í formi þekkingar, sem ekki verður metin til fjár.

Þannig geta grunnrannsóknir haft svo víðtæk áhrif að þær móta samfélagið til frambúðar, þó svo að það hafi ekki verið tilgangur þeirra eða ætlun vísindamannanna. Nægir að nefna frumeindaklukkuna sem leiddi til GPS-tækninnar, kjarnasegulherma sem leiddu til þróunar segulómtækja og hinnar illskiljanlegu skammtafræði sem nú myndar grunn rafeinda- og tölvutækni. Nýlegt dæmi er Zika-veiran sem tiltölulega nýlega braust fram á sjónarsviðið með skelfilegum afleiðingum. Hins vegar höfðu grunnrannsóknir fyrri ára þau áhrif að vísindamönnum tókst að þróa vísi að vænlegu bóluefni.

Ávinningur af frumkvöðlastarfsemi í vísindum getur líka verið af öðrum toga, því um leið og þau hafa bein áhrif á velferð og daglegt líf fólks þá geta djörf og skapandi vísindi stuðlað að enn frekari áhuga almennings á sjálfum vísindunum, svo lengi sem þeir vísindamenn sem þau stunda gangast við þeirri ábyrgð sem notkun almannafjár fylgir og eru reiðubúnir og viljugir til að miðla af reynslu sinni og dýrmætri þekkingu.

Þær breytingar sem fyrirhugaðar eru á fjárframlögum í Rannsóknasjóð og þeim er varða gjaldtöku munu vafalaust hafa hamlandi áhrif á íslenskt vísindastarf. Slíkt á ekki að viðgangast á tímum þar sem þörfin fyrir framsækin vísindi er sem mest. Ávinningurinn af öflugri fjármögnun grunnrannsókna er slíkur að við höfum ekki efni á að draga úr henni. Ávinningur þessi er ekki aðeins fólginn framförum í vísindum og tækni, heldur í þeirri ákvörðun að færa vísindin ofar í forgangsröðina; að gera þau að grunnstefi samfélagsins.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×