Skoðun

Sendiherra til sölu

Kristófer Alex Guðmundsson skrifar
Opinber embætti ættu að vera skipuð hæfasta aðila hverju sinni. Þegar um er að ræða embætti sendiherra Íslands til erlendra ríkja er fýsilegt að viðkomandi hafi reynslu af stjórnmálum og alþjóðasamskiptum. Fyrrverandi þingmenn og ráðherrar búa þannig yfir ákveðinni hæfni sem gæti reynst vel í slíkum embættum. Aftur á móti ætti utanríkisráðherra aldrei að skipa aðila í embætti í þeim skilningi að hann sjálfur yrði launaður seinna með eigin sendiherratign.

Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Miðflokksins og fyrrverandi utanríkisráðherra í ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks, skipaði Geir H. Haarde sendiherra Íslands í Bandaríkjunum árið 2014. Geir H. Haarde var formaður Sjálfstæðisflokksins líkt og mörgum er kunnugt um. Nýverið birtist upptaka af Gunnari Braga þar sem hann segir: „Ég átti fund með Bjarna [Benediktssyni] í fjármálaráðuneytinu. Ég sagði við Bjarna: „Það er algjörlega sjálfsagt. Auðvitað geri ég Geir að sendiherra.“ Og ég sagði við hann: „Og mér finnst sanngjarnt að þið horfið til svipaðra hluta þegar ég þarf á því að halda.““

Gunnar Bragi virðir traust kjósenda að vettugi. Þingmaðurinn tók umboðið sem þjóðin veitti honum og nýtti sér það til þess að tryggja sjálfum sér eftirsótta og hálaunaða vinnu að loknum stjórnmálaferli sínum. Slík spilling á ekki að viðgangast hérlendis. Vinnubrögðin draga í efa allar þær ákvarðanir sem þingmaðurinn tók sem utanríkisráðherra og raunverulegu ástæðurnar á bak við þær. Gunnar Bragi hefur rýrt traust almennings á stjórnmálum og ætti að biðjast afsökunar og segja af sér hið snarasta.

Fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins var skipaður sendiherra og Gunnar Bragi viðurkennir að hann hafi farið á fund núverandi formanns Sjálfstæðisflokksins, Bjarna Benediktssonar og gert grein fyrir því að honum þætti „sanngjarnt“ að horft væri til svipaðra hluta þegar hann þyrfti á því að halda. Hverju svaraði formaður Sjálfstæðisflokksins? Harðneitaði hann að spila með heiðarleika íslenskra stjórnvalda og ef svo, hvers vegna skipaði Gunnar Bragi Geir sendiherra hvort sem er? Eða leist formanni Sjálfstæðisflokksins vel á fyrirkomulagið? Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, þáverandi forsætisráðherra, tók undir orð Gunnars Braga og sagði að Bjarni Benediktsson hefði „fallist á það að ef þetta gengi eftir, þá ætti Gunnar inni hjá Sjálfstæðismönnum“.

Uppreisn, ungliðahreyfing Viðreisnar hvetur stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis til þess að fara ofan í saumana á skipun sendiherra síðustu ár. Embætti sendiherra eru of mikilvæg fyrir utanríkisþjónustu þjóðarinnar til þess að vera keypt og seld í bakherbergjum.

Höfundur er forseti Uppreisnar, ungliðahreyfingar Viðreisnar




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×