Skoðun

Lesið og skrifað á 21. öldinni

Ólöf Skaftadóttir skrifar
„Í dag má segja að börn séu læs þegar kemur að tækni en ekki skrifandi,“ sagði Katrín Atladóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, í útvarpsviðtali á dögunum. Í gær lagði borgarfulltrúinn svo fram tillögu þar sem hún lagði til að forritun yrði almennt kennd í grunnskólum. Meirihluti borgarstjórnar samþykkti tillögu fulltrúa minnihlutans, aldrei þessu vant. Ánægjulegt var að sjá stjórnmálamennina stíga upp úr dægurþrasi í aðdraganda jóla og styðja góða hugmynd.

Þau börn sem nú ganga í grunnskóla hafa haft aðgang að tölvu frá því þau fæddust. Samkvæmt nýlegum rannsóknum verða 65 prósent þeirra starfa sem unnin eru í dag ekki til innan fárra ára. Tækniþróun undanfarinna ára og áratuga hefur gjörbreytt heiminum. Þessi þróun mun halda áfram og að endingu gjörbreyta því umhverfi sem við þekkjum. Tölvur og gervigreind munu á næstu áratugum sjálfvirknivæða um helming þeirra starfa sem mannkynið vinnur í dag, líkt og þekkt er. Tæknimenntað fólk hefur mikið um það að segja hvernig atvinnulífið, og þar af leiðandi samfélagið sjálft, mun líta út í fyrirsjáanlegri framtíð.

Í dag er lítið, en þó eitthvað, fjallað um forritun í aðalnámskrá grunnskólanna. Skólunum er í sjálfsvald sett hversu mikla forritun skal kenna. Þannig getur það oltið á áhuga og getu kennara hversu mikið forritun er tvinnuð inn í námsefnið. Sumir kennarar leggja mikið upp úr forritun, aðrir ekki. Slíkt bitnar á möguleikum barna þegar þau vaxa úr grasi.

Mikilvægt er í þessu samhengi að sveitarstjórnir komi á samtali milli grunnskóla og atvinnulífs um hvernig framtíðin lítur út. Þessi tillaga er gott skref í þá átt, þar sem kennsla í forritun verður innleidd í sátt við starfsfólk grunnskólanna. Forritunarkennsla verði veigamikill þáttur í menntun barna. Til þess þarf að virkja og mennta kennara, foreldra og börnin sjálf. Það er ærið verkefni, en einfaldlega svar við kalli tímans.

Flest börn í dag kunna að nota tölvur. Þau horfa á bíómyndir og þætti, skoða samfélagsmiðla, læra jafnvel tungumál og nota ýmis forrit fyrir ólík áhugamál sín. Eins og það er mikilvægt að kunna að nota tæknina er ekki síður mikilvægt að hafa grunnhugmynd um það hvernig hún virkar. Það er einfaldlega mikilvægur hluti af læsi 21. aldarinnar. Börnin okkar eiga að kunna að lesa, skrifa, reikna og forrita. Forritun er nauðsynlegur þáttur í að undirbúa börnin til þess að mæta kröfum sem þeirra bíða. Það er hlutverk sveitarstjórna, foreldra og kennara að fjárfesta í þessari framtíð.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×