Skoðun

Mannasiðir

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Samtal drukkinna þingmanna á Klaustri opnaði illa þrútið graftarkýli. Æ fleiri sögur um óviðeigandi hegðun og ummæli þingmanna birtast nú í fréttum. Boðaðar hafa verið fleiri fréttir af sambærilegu.

Síðustu ár hefur umræða um kynbundið ofbeldi, áreitni og kvenfyrirlitningu verið áberandi undir hatti herferða á borð við #metoo og í tengslum við Druslugönguna, svo dæmi séu nefnd. Þar hefur ýmsu misfögru verið ýtt upp á yfirborðið.

Góðu fréttirnar eru að mörk í samskiptum manna í milli hafa verið að skýrast. Óþol gagnvart áreitni og ofbeldi fer vaxandi. Ábyrgðinni er vísað til föðurhúsanna, til þeirra sem beita ofbeldi og misrétti.

Slæmu fréttirnar eru að leikreglurnar eru ekki skýrar, þegar ekki er um að ræða klárt brot á hegningarlögum sem á augljóslega heima á borði lögreglu. Óljósara er hvernig við tökumst á við gráu svæðin, hver viðurlög skuli verða á þinginu, ef einhver, við annars konar áreitni, önnur en samfélagsleg útskúfun og mannorðshnekkir.

Enginn rekur þingmann nema kjósendur á fjögurra ára fresti. Afar sjaldgæft er að þingmenn dragi sig í hlé vegna hneykslismála, líkt og gerist allt í kringum okkur.

Eftir að upptökur af samræðum þingmannanna á Klaustri láku í fjölmiðla var siðanefnd Alþingis kölluð til í fyrsta sinn. Kannski er það ágætt skref, þótt ekki sé enn ljóst hvort hún geti beitt nokkrum viðurlögum, hver sem niðurstaða hennar kann að verða.

Samfylkingin hefur gert tilraun til að búa til umgjörð um hvað skal gert þegar flokksmenn verða uppvísir að ósæmilegri hegðun. Hún setti á laggirnar svokallaða trúnaðarnefnd, þar sem hægt er að koma á framfæri kvörtunum um áreitni eða einelti. Nefndin hefur sætt gagnrýni, líkt og aðrar sambærilegar nefndir, til að mynda hjá Þjóðkirkjunni, sem hafa tekist á við sambærileg mál innanhúss. Þá sé erfitt að hafa slíka nefnd starfandi innan stjórnmálaflokks til að takast á við málefni innan flokksins, þar sem pólitíkin ráði gjarnan för. Allir vita að hjaðningavíg samherja innan flokka geta verið illvíg – jafnvel illvígari en bardagar milli svokallaðra andstæðinga í pólitík.

Hvað er til ráða? Sennilega hefur enginn svarið á reiðum höndum. Verður tímabundið leyfi meginreglan – í von um að rykið setjist og menn geti svo sest aftur í stólinn eins og ekkert hafi í skorist?

Er raunhæft að gera sér vonir um að menn fari að vanda sig – tileinka sér mannasiði og meiri kurteisi? Það er ærið verkefni að búa til staðlað form fyrir mannasiðina, sem við flest lærum í uppeldinu. Er það yfirleitt hægt? Alla vega – okkur er hollt að ræða málin, líkt og nú er gert. Stinga á kýlinu og fá gröftinn út.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×