Kyssti miðann og vann 41 milljón Kristín Ólafsdóttir skrifar 14. febrúar 2019 10:04 Vinningshafinn sendi barnabarnið út í búð til að kaupa aukamiðann. vísir/vilhelm
Vinningshafi í lottóútdrætti helgarinnar sótti vinninginn á skrifstofu Íslenskrar getspár í vikunni en sá heppni hreppti rúmlega 41 milljón króna. Í tilkynningu frá Íslenskri getspá segir að vinningshafinn og barnabarn hans hafi tekið sig til og kysst miðann í von um „sérstaka lukku“ – með tilætluðum árangri, að því er virðist. Í tilkynningu segir að sá heppni sé með lottómiða í áskrift en kaupi aukamiða þegar potturinn er stór, líkt og síðasta laugardag. Vinningshafinn er sagður hafa sent áðurnefnt barnabarn sitt til að kaupa aukamiðann á bensínstöð N1 við Hörgárbraut á Akureyri. Þá hafi vinningshafinn og barnabarnið smellt hvort sínum kossinum á miðann, eins og áður segir. Ætla má að fyrirlesarinn Alda Karen Hjaltalín gleðjist við fréttir af uppátækinu en hún vakti mikla athygli í byrjun árs fyrir að hvetja fylgjendur sína til að kyssa peninga. Samkvæmt Öldu Karen átti aðferðin að auka líkur á auðsöfnun.
Akureyri Fjárhættuspil Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum Erlent Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Innlent Sundhnúksgígaröðin að verða búin Innlent Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Innlent Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Innlent Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Innlent Ráku háttsettan herforingja sem sakaður var um lygar Erlent Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Innlent „Þetta var mjög skrýtin stemning“ Erlent Fleiri fréttir Kapphlaup við tímann í Karphúsinu og eggjaskortur í aðdraganda jóla Í símanum undir stýri og bíllinn mikið skemmdur Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Biskup fagnar hækkun sóknargjalda Sundhnúksgígaröðin að verða búin Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Breyting á eldgosinu og stór dagur í Karphúsinu Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Minni virkni í miðgígnum Vextir og kosningar í Sprengisandi Réttindalausir stútar á ferðinni Engar sýnilegar breytingar á hraunflæði eða krafti Ók á ljósastaur við Grensásveg Eldur kviknaði í bíl í Mosfellsbæ Læknar fara þokkalega bjartsýnir inn í morgundaginn Viðreisn stærst samkvæmt nýrri kosningaspá en mjótt á munum Sjálfstæðisflokkurinn hafi lagt til niðurskurð á hverju ári Hefur gefið Landgræðslunni 26 milljónir króna í formi fræja Mikilvægt að Bláa lónið geti opnað sem fyrst Hvetja íbúa Suðurnesja til að spara heita vatnið Varnaraðgerðir í Svartsengi og umdeild yfirhalning hjá Jaguar Ísland virðir handtökuskipan á hendur Netanjahú Fjölmiðlabann í kjaradeilu kennara Hildur hnýtir í Sigurð og sakar hann um ýkjur Straumar valda álagi á varnargarða og staðan viðkvæm Byggt og byggt á Suðurlandi og það þarf að byggja enn meira KÍ segir ummæli Ingu Rúnar „rannsóknarefni“ „Við gerum aldrei neitt nema með fullu samþykki“ Sjá meira