Skoðun

Kúltúrinn í klessu

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Fréttir af hækkun mánaðarlauna bankastjóra Landsbankans um 1,2 milljónir hinn 1. júlí 2017 og aftur um 550 þúsund í apríl 2018 koma á versta tíma inn í viðkvæmar kjaraviðræður. Verkalýðsforystan hefur gagnrýnt hana harkalega, líkt og var fyrirséð. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins hefur einnig gagnrýnt ákvörðunina og kallað hana taktlausa. Undir sjónarmið beggja er vel hægt að taka í þetta sinn.

Stjórnmálamenn hafa einnig nýtt sér tækifærið undanfarna daga og gagnrýnt mjög launahækkun bankastjórans. Þar á meðal eru þingmenn og ráðherrar. Þótt launahækkun bankastjórans sé fullkomlega taktlaus og beinlínis hættulegt innlegg inn í þungan kjaravetur virðast stjórnmálamennirnir sem það gagnrýna einfaldlega of auðvelt skotmark, sérstaklega fyrir popúlista. Forsætisráðherra, sem kallaði launahækkun bankastjórans „óverjandi“, hefur ívið meira í mánaðarlaun en forsætisráðherra Bretlands, Theresa May, þar sem um 66 milljónir manna búa. Það er vitaskuld umhugsunarefni, en það dæmir hana ekki sjálfkrafa úr leik þegar rætt er um kjaramál.

Vandi vinnumarkaðarins er miklu djúpstæðari en samningar um launahækkanir nú. Kúltúrinn er allur í klessu. Þeir sem hafa sig mest í frammi úr ranni verkalýðsforystunnar leggja sig fram um að þagga niður í öllum þeim sem dirfast að koma fram á völlinn með skynsamar og hófstilltar skoðanir, og lemja þá niður með gífuryrðum og dónaskap. Ef marka má fullyrðingar sumra verkalýðsforingja má ekki einu sinni hlusta á seðlabankastjóra fjalla almennt um íslenskan efnahag. Einn verkalýðsforingjanna lýsti borðleggjandi málflutningi Más Guðmundssonar um að verkföll og launahækkanir umfram svigrúm yrðu hagkerfinu áfall sem ,,sjokkerandi“. Dæmdi seðlabankastjóra svo úr leik því hann er með svo há laun.

Á hinum endanum situr bankaráð Landsbankans og virðist telja það forsvaranlega hugmynd og heppilegan tíma til þess að hækka laun bankastjóra ríkisbanka um 82 prósent, þvert á öll fyrirmæli úr fjármálaráðuneytinu sem fór fram á að fyrirtæki í ríkiseigu gættu varkárni við launaákvarðanir. Forsætisráðherra, sem ætlar að vanda um við bankaráðið, er svo aftur ótrúverðug í augum þeirra sem hafa hæst í kjarabaráttunni.

Umræðan um kjaramál, og raunar umræðan um svo margt annað, er komin í miklar ógöngur. Eins og hundur sem eltir skottið á sér. Menn skipa sér í fylkingar, öskra og æpa út í tómið og svo kemur nýr fréttadagur og sagan endurtekur sig. Þetta getur ekki verið vænlegt til árangurs.

Skynsamt fólk hlýtur að sakna margumtalaðs stöðugleika, lágmarksstillingar og almennrar skynsemi þegar rætt og fjallað er um stærsta hagsmunamál þjóðarinnar, stöðuna á vinnumarkaði. Annars er hætt við að fari illa. Venjulegt fólk á allt undir.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×