Skoðun

Kveðjur frá Degi og borgarmeirihlutanum til úthverfanna

Diljá Mist Einarsdóttir skrifar
Hugtakið nærþjónustu þekkja nú orðið flestir borgarbúar, en það er ein þeirra fjaðra sem Samfylkingin í Reykjavík og undirsátar hennar í borgarstjórn hafa skreytt sig með undanfarin ár. Þannig var hugtakið að finna í samstarfssáttmála meirihlutans frá árinu 2014, en sá meirihluti fékk að upplifa líf eftir dauðann fyrir tilstilli Viðreisnar á síðasta ári. Nærþjónusta var þó ekki það fyrsta sem kom upp í hugann nú í vikunni þegar starfsmenn Reykjavíkurborgar kynntu hugmyndir um skerta grunnþjónustu í Grafarvogi.

Starfsmenn skóla- og frístundasviðs boðuðu foreldra grunnskóla í norðanverðum Grafarvogi til opinna foreldrafunda um framtíð skóla- og frístundastarfs á svæðinu. Kjörnir fulltrúar minnihlutaflokka í skóla- og frístundaráði heyrðu fyrst af fundunum frá foreldrum barna í Grafarvogi og fengu litlar upplýsingar þegar þeir gengu á starfsmennina um fundarefnið.

Á fundi sem starfsmennirnir héldu í Kelduskóla-Vík kynntu þeir áform um stórtækar breytingar á skólastarfi í Grafarvogi. Breytingarnar fela það í sér að Kelduskóli-Korpu verði lagður niður og starfsemi Kelduskóla-Vík verði sameinuð Vættaskóla-Engjum og Vættaskóla-Borgum. Óhætt er að segja að kynningin hafi lagst illa í foreldra og íbúa sem fjölmenntu á fundinn, en nýlega var ráðist í sameiningaraðgerðir í skólum í Grafarvogi. Íbúum eru þær enn í fersku minni – ekki síst þau loforð sem ekki var staðið við af hálfu borgarinnar.

Gera má fjölmargar athugasemdir við illa ígrundaða og undirbúna kynningu Reykjavíkurborgar á þessum fundi. Meðal annars var þar ekki tekið tillit til fyrirhugaðrar uppbyggingar á svæðinu, sem þó verður að teljast lykilforsenda við slík áform. Starfsmennirnir sögðust hreinlega ekki hafa haft slíkar upplýsingar undir höndum.

Í endurnýjuðum samstarfssáttmála meirihlutans í Reykjavík, fyrir kjörtímabilið 2018-2022, eru mörg falleg hugtök, eins og t.d. sjálfbær hverfi. Í sáttmálanum er lögð áhersla á léttari umferð og breyttar ferðavenjur. Í kafla sáttmálans um þjónustu við borgarbúa er ljóst að nærumhverfið er meirihlutanum mikilvægt. Þar er fjallað um fjölbreytt atvinnulíf „í öllum hverfum borgarinnar“ og „endurlífg[un] hverfiskjarna“. Virkilega fallegar hugmyndir. Hvernig skyldu þessar hugmyndir endurnýjaða meirihlutans ríma við hugmyndir um enn frekari sameiningu grunnskóla í 112? Hvernig fer með sjálfbærni

Staðahverfis og ferðavenjur íbúa þar þegar ljóst verður að börnin þar geta ekki lengur labbað í skólann?

Það skyldi þó ekki vera að þessi krúttlegu hugtök séu aðeins hugsuð fyrir vesturhluta borgarinnar? Að aðeins sé stefnt að því að vesturhluti borgarinnar verði sjálfbær og með blómstrandi hverfiskjarna? Við í Grafarvogi, sem höfum fylgst með borgaryfirvöldum breyta okkar hverfiskjörnum í íbúðir hljótum að spyrja okkur. Þeir Grafarvogsbúar sem keyra aukaferðir á degi hverjum vegna sameininga grunnskóla í hverfinu hljóta einnig að velta því fyrir sér.

Kjörnir fulltrúar meirihlutans létu ekki sjá sig á kynningarfundunum og fólu starfsmönnum sínum að taka við skömmunum. Þeir munu síðan fæstir verða varir við afleiðingar gjörða sinna. Þeir búa enda allir utan einn í (bráðum) sjálfbærum vesturhluta borgarinnar.

Höfundur er varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×