Skoðun

Níu milljarða DVD-iðjuver

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Tæknin hefur hrist upp í rótgrónum atvinnuvegum. AirBnb selur meira gistirými en nokkur annar í heiminum en á ekki eina einustu íbúð og ekki hótel heldur. Fyrirtæki á borð við Uber og Lyft hafa gerbreytt starfsumhverfi leigubílstjóra. Bankar taka stakkaskiptum.

Yfirmenn og eigendur banka standa frammi fyrir því að þurfa að laga sig að breyttum veruleika – þeir geta tekið forystu, leitt breytingar, elt þróunina sem þegar er hafin eða hægt og rólega lagt upp laupana. Samkeppnin fer æ harðnandi og sífellt fleiri taka þátt í henni. Tæknirisar á borð við Apple hafa boðað byltingu í bankaþjónustu í allra nánustu framtíð og bankar, sem eingöngu starfa á netinu, hafa þegar verið stofnaðir víða.

Meira að segja flóknustu fjármálagerningar, svo sem stórar skuldabréfaútgáfur, geta nú farið meira og minna fram gegnum tölvur. Þar sem áður þurfti tugi sérfræðinga, þarf nú aðeins örfáa.

Auðvitað er þetta framtíðin, og hún er þegar gengin í garð hér á landi. Kvika banki kynnti í vikunni sparn­aðar­reikninga fyrir einstaklinga með 4 prósenta vöxtum. Um er að ræða talsvert hærri vexti en aðrir bankar hér á landi bjóða. Ástæða þess að bankinn getur boðið þessi kjör er einföld. Þjónustan fer eingöngu fram á netinu og því er yfirbyggingin nánast engin; engin útibú og engir þjónustufulltrúar. Nokkrar mínútur tekur að stofna reikninginn.

Á meðan fréttir af nýrri fjármálaþjónustu Kviku berast, heyrast fréttir af framkvæmdum sem hafnar eru við nýjar höfuðstöðvar Landsbankans, banka í ríkiseigu, á einni dýrustu lóð í borginni. Áætlaður kostnaður við höfuðstöðvarnar nemur níu milljörðum króna.

Hugmyndir um nýju höfuðstöðvarnar fyrir neðan Arnarhól eru ekki nýjar. Sumarið 2008, skömmu fyrir hrun, var blásið til hugmyndasamkeppni um byggingu þeirra. Skömmu eftir hrun voru úrslitin svo tilkynnt, en þá þótti ljóst að vinningstillagan yrði ekki að veruleika – að minnsta kosti ekki um sinn.

Nú, rúmum tíu árum síðar, hefur engum sem hefur með málið að gera dottið í hug að hætta við framkvæmdirnar. Þrátt fyrir að hugmyndin sé ámóta framsýn og að ætla sér að reisa 9 milljarða króna DVD-verksmiðju árið 2019.

Nýju höfuðstöðvarnar skulu þannig rísa við hlið Hörpu við Austurhöfn í nafni hagræðingar. Þar ætlar bankinn að reisa 16.500 fermetra byggingu undir sína hefðbundnu starfsemi. Fyrir þetta greiða neytendur, fólkið í landinu, vitaskuld að lokum.

Okkar séríslenska króna er nefnilega ekki eina ástæða hás vaxtastigs og mikils bankakostnaðar í landinu. Alkunna er, að bankakerfið á Íslandi er of umsvifamikið. Fyrirséð er að fækkun verði í stétt bankamanna. Tækninýjungarnar bjóða hagræðingunni heim.

Þá er bara spurningin: Hvaða fólk eiga nýju höfuðstöðvarnar að hýsa?




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×