Skoðun

Náttúrulegt ónæmi

Kjartan Hreinn Njálsson skrifar
Mörgum brá í brún þegar Matvælastofnun tilkynnti í síðustu viku að athugun á sýklalyfjaónæmi í kjöti og dýrum árið 2018 hefði sýnt fram á að ónæmi sé sannarlega til staðar í íslensku búfé. Ónæmi þetta er vissulega minna en gengur og gerist annars staðar í álfunni, en þó var það að finna í tæplega 4 prósentum sýna sem tekin voru úr íslenskum lömbum (heildarfjöldi sýna í skimun MAST var 76).

„Líkt öðru búfé, eru íslensk lömb ekki laus við bakteríur sem eru ónæmar fyrir sýklalyfjum eða sem geta þróað slíkt ónæmi og dreift í aðrar bakteríur,“ sagði í yfirlýsingu Matvælastofnunar. Þar sagði jafnframt að ekki væri vitað hvernig ónæmar E. coli bakteríur bárust í lömbin, eða hvort ónæmið myndaðist í lömbunum.

Það samtal sem við höfum freistað þess að eiga um sýklalyfjaónæmi og innflutning á ferskum matvælum hefur fyrir löngu verið afvegaleitt með ýkjum, öfgum, hræðsluáróðri og lítilsvirðingu gagnvart vísindalegri þekkingu. Þetta á bæði við um þá sem berjast fyrir rýmri heimildum til innflutnings, og þeirra sem tala gegn þeim. Í skotgröfunum verða hin margvíslegu blæbrigði málaflokksins útvötnuð og einsleit.

Bakteríur eru hinir raunverulegu húsbændur á þessari plánetu. Við erum boðflennurnar í hnattrænu kjörlendi þeirra. Einfrumungar voru með fyrstu lífverum á Jörðinni og í dag er heildar lífmassi baktería meiri en samanlagður lífmassi allra plantna og dýra. Þær hafa jafnframt hertekið líkama okkar en þeir hafa að geyma mun fleiri bakteríur en líkamsfrumur.

Bakteríur eru hreinlega betri en við í að lifa. Líffræði baktería gefur þeim þróunarlegt forskot. Þær skipta sér á ógnarhraða og stökkbreytingar sem veita forskot, eins og ónæmi fyrir sýklalyfi, getur með auðveldum hætti orðið ráðandi í tilteknu umhverfi. Svo klárar eru bakteríurnar að sýklalyfjaónæmið kom á undan sýklalyfjunum, enda hefur ónæmi fundist í allt að 30 þúsund ára gömlum sýnum.

Með öflugu eftirliti og samvinnu þvert á landamæri er hægt að halda sýklalyfjaónæmi – hinni miklu heilsufarsógn okkar tíma – í skefjum. En því verður aldrei útrýmt og að líkindum mun okkur í besta falli takast að fresta hinu óumflýjanlega. Vandamálið er hins vegar ekki óyfirstíganlegt. Það hefur aldrei haft góðar afleiðingar í för með sér að smætta flókin mál niður í einfalt tvenndarkerfi; já eða nei, með eða á móti.

Í tilfelli sýklalyfjaónæmis eru afleiðingar af slíkri nálgun bæði þær að djúpstæður og nauðsynlegur skilningur á málaflokknum verður æ sjaldgæfari, og þær að við verðum enn verr í stakk búin en áður til að takast á við raunverulegt neyðarástand þegar það kemur upp.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×