Skoðun

Kall tímans

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Borgarlína er kall tímans. Einkabíllinn er ekki ferðamáti fólks í borgum nútímans. Síðustu ár hefur bílum fjölgað meira en fólki í borginni. Það stefnir í óefni. En mikil einföldun er að tala um borgarlínu sem lýtalausa töfralausn. Gagnrýnin er að sama skapi iðulega í upphrópanastíl. Fáir feta meðalveginn og sýna sanngirni og hófsemd í umræðunni.

Rétttrúnaður er leiðindaávani stjórnmálamanna þegar rætt er um samgöngur. Hluti Sjálfstæðisfólks vill slá skjaldborg um einkabílinn og lokar augum fyrir mengun bílaumferðar. Samfylkingin má ekki heyra minnst á gatnamót sem geta aukið öryggi vegfarenda án þess að rísa upp á afturlappirnar.

Í náinni framtíð verða breytingar á samgöngumynstri. Deilibílar munu ryðja sér til rúms, notkun rafhjóla aukast, orkuskipti verða í samgöngum og frelsi á leigubílamarkaði gæti orðið að veruleika. Þetta gerbreytir myndinni. Samfélagsgerðin breytist og hefur víðtæk áhrif. Fólk mun í ríkari mæli stunda vinnu að heiman. Umræða um styttingu vinnuviku er fyrirferðarmikil. Styttri vinnuvika gefur svigrúm til að dreifa vinnutímanum, svo að við verðum ekki öll á ferðinni á sama tíma. Slíkt gæti haft mikil áhrif á þarfirnar sem borgarlína þarf að mæta.

Spár gera ráð fyrir að höfuðborgarbúum fjölgi um 40 þúsund til ársins 2030. Markmið borgarlínu er að fjölgunin þyngi ekki umferð. Það er nauðsynlegt. Hvergi er meiri bílaumferð í norðlægri borg. Því fylgir svifryk og sóun á tíma fólks. Því fylgir aftur aukið hreyfingarleysi og færri samverustundir með vinum og fjölskyldu. Rekstur bíls er dýr. Um er að ræða veigamikinn þátt í heimilisbókhaldinu. Svo mætti áfram telja.

Þróun hverfa í borginni skiptir höfuðmáli í þessu samhengi. Hvergi eru fleiri fótgangandi en í Vesturbæ Reykjavíkur. Þar er öll nærþjónusta í göngufæri. Bakarí, verslanir, kaffihús og sundlaug. Hið sama er að gerast í Laugardalnum og víðar. Góð þjónusta nærri heimilum fólks dregur úr umferð.

Borgarlínan er einfaldlega þess eðlis að það þarf að líta til margra átta. Um hana þurfa borgarbúar að eiga lifandi samtal. Svo er borgarlína dýr og fjármögnun óljós þótt ríkið boði þátttöku – hver er verðmiðinn? Sérstaklega er þetta mikilvægt í ljósi atburða liðinna mánaða sem vekja upp hughrif um óstjórn í fjármálum borgarinnar.

Til er hópur fólks sem vill ekki almenningssamgöngur. En flestir vilja hafa úr kostum að velja. Það er hlutverk stjórnmálamanna að búa svo um hnútana að kostirnir verði fólki ljósir. Þá mun bílum fækka.

Nú þarf að fullmóta hugmyndina, kynna kostina án þess að draga fjöður yfir gallana. Þannig fá stjórnmálamennirnir fólkið með sér.

Óskað er eftir yfirvegaðri umræðu um málið. Helst áður en ætt er af stað í miklar og dýrar framkvæmdir.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×