Sigurvegari World Class barþjónakeppninnar fær sér aldrei fleiri en einn Ölgerðin kynnir 21. maí 2019 10:45 Sóley Kristjánsdóttir, Jónmundur Þorsteinsson, sigurvegari kvöldsins og Hlynur Björnsson framkvæmdastjóri keppninnar. Jón Ragnar Jónsson hjá Ketchup Creative
Jónmundur Þorsteinsson rúllaði upp World Class barþjónakeppninni sem fram fór á Kjarvalsstöðum síðastliðinn fimmtudag. Í framhaldinu mun hann keppa fyrir Íslands hönd í World Class keppninni sem fram fer í Glasgow í september. Þar munu barþjónar frá um 60 löndum etja kappi og stendur keppnin yfir í sex daga. Jónmundur er margverðlaunaður barþjónn og segir góða kokteila ekki hrista fram úr erminni, mikill undirbúningur liggi að baki góðum árangri og stífar æfingar.Jónmundur hefur hlotið einna flest verðlaun í faginu á Íslandi.„Ég æfi mig í hverri viku og reyni alltaf að læra meira og bæta mig. Það liggur miklu meiri undirbúningur á bak við þetta en ég þori að viðurkenna. Kærastan mín veit orðið meira um kokteila en færustu barþjónar landsins, ég tala ekki um annað og er alltaf að henda í eitthvað,“ segir hann enda uppsker hann árangur erfiðisins, sigurinn á Kjarvalsstöðum segir hann elleftu verðlaunin sem hann hlýtur. „Ég keppi mjög oft og tapa frekar sjaldan,“ segir hann hress. Úrslitakeppnin á Kjarvalsstöðum var lokahnykkurinn í löngu ferli en World Class keppnin hefur staðið yfir í níu mánuði. Keppendur fá ýmiskonar áskoranir, til dæmis að para drykki við mat og blindsmakka drykki og greina nákvæmt innihald þeirra. Að lokum kepptu fjórir barþjónar til úrslita, Teitur Ridderman Schiöth frá Pablo Discobar, Víkingur Þorsteinsson frá Apótekinu, Sævar Helgi Örnólfsson frá Sushi Social og Jónmundur en hann er einnig barþjónn á Apótekinu. Loka áskorunin var að búa til átta kokteila á átta mínútum og útskýra þá í þaula á meðan. „Við fengum tvo tíma til að undirbúa kokteilana og svo átta mínútur í að búa þá alla til. Þetta var ótrúlega skemmtilegt.“Eins og Michelin stjarnaJónmundur verður fjórði barþjónninn sem keppir fyrir Ísland í World Class barþjónakeppninni en í fyrra náði Orri Páll Vilhjálmsson frábærum árangri og komst áfram í topp 20. World Class barþjónakeppnin hefur verið mikil lyftistöng fyrir íslenska veitingamenningu en henni má líka við Michelin stjörnu í matreiðslubransanum. Jónmundur segir barmenningu hafa breyst mikið á Íslandi síðustu árin og einnig barþjónamenninguna. Að lokum kepptu fjórir barþjónar til úrslita, Teitur Ridderman Schiöth frá Pablo Discobar, Víkingur Þorsteinsson frá Apótekinu, Sævar Helgi Örnólfsson frá Sushi Social og Jónmundur.„Núna er það „karríer“ að vera barþjónn, ekki bara helgardjobb. Þetta er mun sérhæfðara starf en margir halda og á miklu meira skylt við matreiðslu en þjónustustarf. Barhegðun fólks hefur líka breyst síðustu árin og fólk fer ekki á barinn til þess að hella í sig, heldur vill upplifun. Það vill smakka nýtt bragð og pælir miklu meira í því hvað það drekkur og vill vita úr hverju kokteilarnir eru gerðir. Á Apótek sækjum við barþjónarnir líka innblástur til kokkanna í eldhúsinu.“Fær sér bara einnHver skyldi uppáhalds kokteill Jónmundar vera? „Sjálfur fer ég reyndar ekki oft á barinn en þegar ég slysast þangað inn panta ég helst beiskan og sterkan drykk, annað hvort gin og tónik, eða Negroni. Ég fæ mér yfirleitt bara einn. Ég drekk ekki til að verða fullur,“ segir Jónmundur. Honum leiðist aldrei í vinnunni. „Það er adrenalínkikkið, hraðinn og keyrslan fyrir aftan barinn sem gerir þetta svo ótrúlega skemmtilegt. Þetta starf er augljóslega ekki fyrir hvern sem er og oft mikið álag en í lok hverrar einustu vaktar finn ég vel af hverju ég er í þessu starfi. Á Apótek erum við eins og stór fjölskylda og miklir vinir.“ Dómnefndina skipuðu Orri Páll Vilhjálmsson, Andri Davíð Pétursson, Jónas Heiðarr og Kevin Patnode.Þessi kynning er unnin í samstarfi við Ölgerðina.
Matur Mest lesið Einstakur garður í Mosfellsbænum Lífið Steldu stílnum af Áslaugu Örnu Tíska og hönnun Kappleikar 2024: Bara tveir héldu með Donald Trump Lífið Kappleikar: Skörp orðaskipti og skeytasendingar Lífið Óhrædd við að fara sínar eigin leiðir Lífið Sterkustu hjón landsins selja íbúðina Lífið Húðrútína Birtu Abiba Lífið Með stórstjörnum í væntanlegri kvikmynd Marvel Bíó og sjónvarp Vissu hvorki verðið á strætómiða né bjór Lífið Svar Bents við hatursorðræðu gegn útlendingum Lífið Fleiri fréttir Síðasti Bókakonfektmolinn - Höfundar lesa í kvöld Ritdómur: ,,Þú hatar ekki að vera með píku, er það?“ Gleði á forsýningu Sambíóanna og Bylgjunnar á Vaiana 2 Ritdómur Lestrarklefans: Eins konar dans Smáralindin fylltist af bókþyrstum gestum Bókaumfjöllun: Einlæg og íhugul skáldævisaga Höfundar lesa upp úr bókum sínum í beinni í kvöld Bókadómur: Þörf bók um missi Frábært gjafakort sem gleymist ekki ofan í skúffu Skautadiskó til styrktar góðu málefni Vestfjarðaglæpasaga sem kemur á óvart Bókakonfekt Forlagsins: Níu höfundar lesa upp í kvöld Ritdómur: Naskar mannlýsingar í misjöfnu verki Troðfull Smáralind af krökkum að fylgjast með Birgittu Bókaumfjöllun: Að hverfa í tómið Bókaumfjöllun: Kjarkmiklar og áræðnar konur Rauðvínsgljáður sviðakjammi og mysuglassúr á kleinu Höfundar lesa upp í beinni Upplifun og dýrmætar minningar í jólagjöf Bókaumfjöllun: Netflix áhrif í ljúfri jólaástarsögu Bókaumfjöllun: „Allt sem rafmagnið huldi“ Magnesíum kemur í mörgum mismunandi formum Jólaboð sem gleður og yljar á aðventunni Pantaðu sól og gleði með Úrval Útsýn Ritdómur: Gáskafull þeysireið Friðsemdar Ostaboxið frá EasyCheese hefur slegið í gegn Nýr og glæsilegur uppskriftavefur frá Nóa Síríus Ritdómur: Glæpasaga hlaðin leyndarmálum og rómans Ritdómur: Ekkert eins ljúffengt og minningin Þriggja daga veisla með Skálmöld í Hörpu Sjá meira