Saga Íslandsmeistari í fyrsta sinn og Rúnar varði titilinn Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. júní 2019 19:48 Saga og Rúnar með verðlaunagripina. mynd/[email protected]
Saga Traustadóttir, GR, og Rúnar Arnórsson, GK, eru Íslandsmeistarar í holukeppni 2019. Þau hrósuðu sigri á Securitas-mótinu sem lauk á Garðavelli á Akranesi í dag. Alls tóku 32 karlar og 23 konur þátt. Í úrslitaleiknum í kvennaflokki sigraði Saga Ragnhildi Kristinsdóttur, GR, eftir bráðabana. Saga vann þarna sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í holukeppni. Hulda Clara Gestsdóttir, GKG, sigraði Amöndu Guðrúnu Bjarnadóttur, GHD, í leiknum um 3. sætið, 5/4. Rúnar sigraði Ólaf Björn Loftsson, GKG, í úrslitaleiknum í karlaflokki, 3/2. Rúnar varð þar með Íslandsmeistari annað árið í röð. Í leiknum um 3. sætið vann Jóhannes Guðmundsson samherja sinn úr GR, Arnór Inga Finnbjörnsson, eftir bráðabana.
Golf Mest lesið Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Enski boltinn „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ Enski boltinn Geir fer aftur í Vesturbæinn Íslenski boltinn Enn erfiðara að komast á heimsleikana í CrossFit á næsta ári Sport Tímabært að breyta til Handbolti Blóðug hlaupaferð hjá Guðlaugu Eddu Sport Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Fótbolti Kallaði dómarann tík og rúmlega það Körfubolti Verstappen áfram hjá Red Bull Formúla 1 Fleiri fréttir Vann hæsta verðlaunafé sem golfkona hefur fengið McIlroy skaut niður dróna „Orðinn þreyttur á Venna strax á fyrstu holu“ McIlroy kemur „úr felum“ eftir óvenjulegar æfingabúðir Golfstjarnan mætti á upp svið með Trump Kylfingur blindur á auga eftir golfbolta Hundur hljóp inn á og stal golfkúlu Bales Sigurður sótti silfur fyrstur Íslendinga til Makaó: „Rosalega stoltur“ Íslendingur efstur í Arkansas: „Hann er nýnemi!“ Sjá meira