Upp um 907 sæti á heimslistanum og Áskorendamótaröðin innan seilingar Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. júní 2019 09:00 Guðmundur Ágúst hefur unnið tvö mót á Nordic Tour atvinnumótaröðinni í ár. Mynd/[email protected]
Guðmundur Ágúst Kristjánsson, kylfingur úr Golfklúbbi Reykjavíkur, hefur farið upp um 907 sæti á heimslistanum á síðustu mánuðum. Þá er hann nálægt því að tryggja sér sæti á Áskorendamótaröðinni. Guðmundur hefur unnið tvö mót á Nordic Tour atvinnumótaröðinni í ár og er annar á stigalista mótaraðarinnar á eftir Svíanum Fredrik Niléhn. „Topparnir hafa verið meiri. Í fyrra var þetta oft mjög svipað og ég var oft á meðal 20 efstu. En það gerir ekki mikið fyrir mann,“ sagði Guðmundur í samtali við Arnar Björnsson í Sportpakkanum. Ef Guðmundur vinnur eitt mót í viðbót á Norðurlandamótaröðinni öðlast hann þátttökurétt á Áskorendamótaröðinni. „Þá fæ ég að vera á Áskorendamótaröðinni það sem eftir lifir þessa árs og allt næsta ár. Það væri mjög mikilvægt að ná einum sigri í viðbót og fara upp á næsta stig,“ sagði Guðmundur sem var í 1656. sæti heimslistans í lok síðasta árs. Nú er hann í 749. sæti. „Á Áskorendamótaröðinni eru betri leikmenn, hærra verðlaunafé og tækifæri til að komast inn á Evrópumótaröðina. Efstu 15 komast þangað,“ sagði Guðmundur tekur þátt í úrtökumóti fyrir Opna breska meistaramótið á næstunni. Þá verður hann á meðal þátttakenda á Íslandsmótinu í golfi í byrjun ágúst. Fréttina í heild sinni má sjá hér fyrir neðan.
Golf Mest lesið Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Enski boltinn „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ Enski boltinn Geir fer aftur í Vesturbæinn Íslenski boltinn Enn erfiðara að komast á heimsleikana í CrossFit á næsta ári Sport Tímabært að breyta til Handbolti Blóðug hlaupaferð hjá Guðlaugu Eddu Sport Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Fótbolti Kallaði dómarann tík og rúmlega það Körfubolti Verstappen áfram hjá Red Bull Formúla 1 Fleiri fréttir Vann hæsta verðlaunafé sem golfkona hefur fengið McIlroy skaut niður dróna „Orðinn þreyttur á Venna strax á fyrstu holu“ McIlroy kemur „úr felum“ eftir óvenjulegar æfingabúðir Golfstjarnan mætti á upp svið með Trump Kylfingur blindur á auga eftir golfbolta Hundur hljóp inn á og stal golfkúlu Bales Sigurður sótti silfur fyrstur Íslendinga til Makaó: „Rosalega stoltur“ Íslendingur efstur í Arkansas: „Hann er nýnemi!“ Sjá meira