Skoðun

Kænn hvati 

Kristín Þorsteinsdóttir skrifar
Helsta nýmælið í nýju frumvarpi menntamálaráðherra um Lánasjóð íslenskra námsmanna er að þeir sem ljúka prófgráðu innan tilskilins tíma geta fengið námsstyrk sem nemur 30 prósentum af höfuðstól námsláns.

Umræðan meðal hagsmunahópa stúdenta, er stundum á þá leið að eini opinberi stuðningurinn við háskólanema sé námslánakerfið. Því fer fjarri. Háskólarnir – Háskóli Íslands sérstaklega – eru opinberar stofnanir, reknar að stærstum hluta fyrir opinbert fé. Háskólastúdentar greiða skrásetningargjald sem ekki stendur undir nema broti af kostnaði. Lánasjóðurinn í núverandi mynd veitir afslátt með vaxtaívilnun, og þarf að þola afskriftir vegna þeirra sem ekki endist aldur til endurgreiðslu.

Vel má velta fyrir sér hvort smáríki eins og Ísland sé of metnaðarfullt á háskólasviðinu, eins öfugsnúið og það hljómar. Boðið er upp á allar mögulegar og ómögulegar námsgreinar. Kannski ætti að einbeita sér að kjarnagreinum og hvetja fólk til að fara utan til að sækja sér annað nám. Utanfarar snúa heim og með gullvæga reynslu, landi og þjóð til heilla.

Í frumvarpi Lilju Alfreðsdóttur kemur fram að á síðustu árum hafi meðallán hjá LÍN hækkað. Námsmenn eru lengur í námi og sækja lengra og dýrara nám. Þeir eru eldri að jafnaði. Þó hefur hlutfall þeirra sem sækja nám í útlöndum lækkað.

Háskólastúdentar taka sér lengri tíma en áður til að ljúka námi hér heima og sækja síður út. Hvorugt er æskilegt. Enginn græðir á því að fólk ílengist í námi. Droll í háskóla í stað þess að sækja sér iðnmenntun eða launavinnu er engum til góðs. Kerfið á að forða fólki frá örlögum eilífðarstúdentsins.

Frumvarp Lilju tekur á þessu. Með því að breyta hluta námslána til þeirra sem klára á tilsettum tíma í styrk, er fólk hvatt til að klára á réttum tíma. Frumvarpið gerir líka metnaðarfullum stúdentum auðveldara að sækja nám erlendis, enda eftir miklu að slægjast að fá 30 prósent lána felld niður. Munar um minna. Nám við bestu háskóla erlendis er oft dýrt – kostnaðurinn óyfirstíganleg hindrun fyrir suma.

Einhverjir munu gagnrýna útfærsluna á styrknum með þeim rökum að ekki sé ástæða til að niðurgreiða menntun frekar. En það er örugglega dýrara þegar upp er staðið að fólk fari sér óþarflega hægt í námi. Frumvarpið tekur á því og hvetur fólk til að flýta för.

Þegar rætt erum lánamál á Íslandi er gjaldmiðillinn alltaf fíllinn í herberginu. Mesta kjarabótin til langs tíma fyrir stúdenta og aðra lántaka á Íslandi væri að Ísland yrði hluti af stærra myntsvæði með stöðugri gjaldmiðli. Engin lausn er hins vegar í sjónmáli í þeim efnum.

Ráðherra virðist nýta tólin sem hún hefur skynsamlega. Ef nýtt námslánakerfi verður til þess að flýta för stúdenta og hvetja þá til að leita reynslu út fyrir landsteinana er til mikils unnið.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×