Skoðun

Friðarbarátta

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar
Í gegnum söguna hefur maðurinn margsannað sjálfseyðingarhvöt sína. Enginn skyldi því vanmeta hæfni hans til að tortíma sér. Pólitískir leiðtogar heims, sem hafa mikil áhrif, sýna margir hverjir lítinn vilja til að gera heiminn að öruggari stað. Áhugi þeirra á því að bjarga heiminum er í algjöru lágmarki. Kannski ætti þetta sinnuleysi ekki að koma á óvart, svona miðað við gang sögunnar þar sem mikið hefur farið fyrir umfangsmiklum stríðsrekstri með tilheyrandi hörmungum.

Ár hvert, þar á meðal hér á landi, minnast friðarsinnar kjarnorkuárásanna á Hírósíma og Nagasaki í ágústmánuði árið 1945. Frá árinu 1985 hefur sá fallegi siður tíðkast hér á landi að fleyta kertum á Reykjavíkurtjörn og minnast þannig fórnarlambanna um leið og minnt er á sjálfsagða kröfu um heim án kjarnorkuvopna. Nú í kvöld verður kertum ekki bara fleytt við Reykjavíkurtjörn heldur einnig á Akureyri, Ísafirði og Patreksfirði.

Ekkert bendir til að friðarsinnum verði að ósk sinni um heim án kjarnorkuvopna. Heimurinn hefur alltaf verið hættulegur staður og er það svo sannarlega nú um stundir. Á of mörgum póstum hafa hreiðrað um sig valdasjúkir ófriðarsinnar sem skemmta sér við að hafa í hótunum við önnur ríki og gætu hugsað sér að grípa til kjarnorkuvopna.

Í heimildarmynd sem sýnd var fyrir skömmu á RÚV var fjallað um Stan­islav Petrov, einn fárra manna sem hægt er að segja að hafi bjargað heiminum. Árið 1983 var hann yfirmaður í stjórnstöð sov­éska hers­ins þegar mæli­tæki sýndu að eld­flaug­um væri skotið frá Banda­ríkj­un­um í átt að Sov­ét­ríkj­un­um. Hann hafði ekki mikinn tíma til umhugsunar en niðurstaða hans var að mælitæki væru biluð. Hinni meintu árás var því ekki svarað með kjarnorkuflaugum. Í þessari merku heimildarmynd sagðist Petrov, sem lést fyrir tveimur árum, ekki efast um að kjarnorkuáras ætti eftir að verða með tilheyrandi eyðingu, maðurinn hefði einfaldlega ekkert lært af sögunni.

Kjarnorkuváin var nýlega fest á filmu í þáttunum marglofuðu um Chernobyl-kjarnorkuslysið í Sovétríkunum árið 1986. Þar voru afleiðingar slyssins sýndar á miskunnarlausan hátt. Undir hljómaði mögnuð tónlist Hildar Guðnadóttur og jók mjög á þann beyg sem hlýtur að hafa sótt á alla þá sem horfðu á þættina.

Mannkyninu gengur vissulega afar erfiðlega að læra af sögunni. Sumir læra þó. Kertafleyting í minningu fórnarlambanna í Hírósíma og Nakasaki er til marks um það. Skilaboðin sem send eru út um allan heim á þessum degi, 9. ágúst, eru: Við viljum heim án kjarnorkuvopna. Lítil von er reyndar til að þessi skilaboð rati til þeirra þjóðarleiðtoga sem helst vilja vera í stöðugum stríðsleikjum. Þeir eru ekki karakterar sem láta sér segjast. Það á hins vegar ekki að draga kjark úr öllum þeim sem þrá að lifa í friðsamlegum heimi. Það er siðferðileg skylda þeirra að leitast við að gera heiminn örlítið betri.

Í heimi, sem getur verið grimmur og óréttlátur, skiptir friðarbarátta máli. Þeirri baráttu má aldrei ljúka.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×