Skoðun

Sameiginlegir hagsmunir okkar allra

Þórunn Sveinbjarnardóttir skrifar
Kjaraviðræður aðildarfélaga Bandalags háskólamanna (BHM) við ríki, Reykjavíkurborg og Samband íslenskra sveitarfélaga hafa staðið frá því í vor. Hvorki hefur gengið né rekið í viðræðunum og svo virðist sem samráð þessara þriggja viðsemjenda sín í milli tefji frekar fyrir en hitt. Kjaraviðræður eru nú að hefjast á ný að loknu sumarleyfi og rétt rúmur mánuður til stefnu því samkvæmt viðræðuáætlunum hyggjast flestir hafa náð samningum 15. september nk.

Meginkröfur aðildarfélaga BHM í yfirstandandi kjaraviðræðum eru skýrar og sanngjarnar. Félögin hafa afþakkað krónutöluhækkanir enda eru þær í engu samræmi við uppbyggingu þess launakerfis sem háskólamenntaðir sérfræðingar hjá hinu opinbera starfa innan.

Krafan um styttingu vinnuvikunnar hefur fengið nokkurn hljómgrunn hjá viðsemjendum BHM. Það vekur vonir um að hægt verði að stíga raunhæf skref í þessa átt í væntanlegum kjarasamningum. Samræming lífeyrisréttinda milli almenna og opinbera vinnumarkaðarins kallar á að launakjör séu einnig samræmd milli markaða. Í samkomulagi sem bandalög opinberra starfsmanna gerðu við ríki og sveitarfélög árið 2016 var stefnt að því að jöfnun launa tæki 6–10 ár. Nú þegar eru liðin þrjú ár frá undirritun samkomulagsins og morgunljóst að taka verður fyrstu skref í átt til jöfnunar í yfirstandandi kjaraviðræðum.

Þá er mikilvægt fyrir félagsmenn aðildarfélaga BHM að létta endurgreiðslubyrði námslána. Áætlað er að starfshópur sem forsætisráðherra skipaði til að fjalla um þetta mál skili niðurstöðum í lok sumars. BHM bindur vonir við að á grundvelli þeirra verði hægt að gera nauðsynlegar breytingar sem koma til móts við greiðendur námslána.

Nú þarf að bretta upp ermar og gera góða kjarasamninga. Samninga sem tryggja háskólamenntuðum sérfræðingum hjá ríki, borg og sveitarfélögunum sanngjarnar launahækkanir og eðlilegar umbætur. Slíkir samningar myndu án nokkurs vafa auðvelda nýliðun og mönnun mikilvægra starfsstétta hjá hinu opinbera og bæta almannaþjónustuna í landinu. Það eru sameiginlegir hagsmunir okkar allra.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×