Skoðun

Næstbesti kosturinn

Logi Einarsson skrifar
Í flóknum veruleika samtímans verður sífellt augljósara hversu miklu máli fjölþjóðleg samvinna skiptir fyrir örþjóð eins og Ísland. Hraðar tæknibreytingar kalla á sameiginlegar lausnir en erfiðasta og brýnasta verkefnið er að stemma stigu við hamfarahlýnun – og það mun ekki takast nema með samvinnu sem flestra þjóða. Þar er Evrópusambandið í fararbroddi.

Með aðild að EES-samningnum breyttist Ísland úr 300 þúsund manna markaði í 500 milljóna. En stundum gleymast áhrif samningsins á daglegt líf einstaklingsins.

Á svipstundu fengu Íslendingar frelsi til að ferðast, vinna og mennta sig hvar sem er á Evrópska efnahagssvæðinu. Í gegnum EES-samninginn höfum við líka tekið upp tilskipanir frá Evrópusambandinu um bætt loftgæði og meira jafnrétti. Tilskipanir sem auka réttindi launafólks, t.d. varðandi frítíma og sveigjanleika í vinnu til að sjá um börnin okkar eða nána aðstandendur, sem færa okkur betri og öruggari lyf, gera okkur kleift að vafra á snjallsímanum hvar sem er í Evrópu eins og við værum heima hjá okkur, tryggja rétt okkar ef flugi innan Evrópu seinkar eða fellur niður. Tilskipanir sem hvetja til framleiðslu á umhverfisvænni vörum, tryggja virkari samkeppni og bæta starfsumhverfi ör- og smáfyrirtækja. Allt þetta, og meira til, hefur áhrif á daglegt líf okkar.

Í samningnum um EES er sem sagt margt afar jákvætt en annað sem skiptir okkur minna máli. Í sérstökum tilvikum er hægt að semja um einstakar undanþágur áður en til innleiðingar kemur, eftir að lög hafa verið samþykkt hjá ESB.

EES-samningurinn er okkur því mjög mikilvægur en þó aðeins næstbesti kosturinn sem okkur stendur til boða; allra best væri full aðild að ESB með möguleikum til ríkari áhrifa á daglegt líf okkar til framtíðar. Rúsínan í pylsuendanum væri svo auðvitað aðgangur að öflugri og stöðugri mynt með margfalt lægri vaxtakostnaði og þar með ódýrara húsnæði og matarkörfu auk stöðugra starfsumhverfis fyrir fyrirtæki. Ekkert myndi skila venjulegum íslenskum heimilum meiri kjarabót.

Höfundur er formaður Samfylkingarinnar.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×