Skoðun

Ábyrgð í dag

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Sláandi munur er á að hefja rekstur í Reykjavík og borgum á Norðurlöndum að sögn framkvæmdastjóra Joe & the Juice á Íslandi. Í Reykjavík telur hann ferlið „úrelt, ógagnsætt, óþarflega umfangsmikið og tímafrekt“.

Umkvartanir framkvæmdastjórans ríma við reynslu annarra fyrirtækja í borginni, sem lýstu slæmri reynslu sinni af rekstri í Reykjavík í samtali við Markað gærdagsins. Öllu ferlinu virðist ábótavant, nánast hvar sem drepið er niður fæti. Umsóknir taka langan tíma og jafnvel týnast í regluverksfrumskógi. Einföldustu hlutir virðast vefjast fyrir borgaryfirvöldum eins og undirritun leyfa og pappíra. Traustið í garð einkaframtaksins er í skötulíki.

Viðmótið sem fyrirtæki mæta hjá borginni virðist stundum vera að sjálfsagðir hlutir séu bannaðir þangað til þeir eru sérstaklega leyfðir. Auðvitað er það öfugsnúið.

Fyrirsjáanleikinn er svo enginn. Eigandi öldurhúss lýsir því að útsendarar borgarinnar hafi hvatt hann til kaupa á matarvagni. Nokkru síðar var tilkynnt að leyfi vagnsins umtalaða yrði ekki endurnýjað vegna yfirvofandi framkvæmda á svæðinu. Þar fór stór biti í súginn.

Framkvæmdirnar miðsvæðis þekkja allir. Vitaskuld er nauðsynlegt að endurnýja stræti. Uppbygging miðborgarinnar er af hinu góða. En hún verður að eiga sér stað skipulega og með eðlilegu samráði við íbúa og atvinnulíf. Ekki er boðlegt að senda bréf á föstudegi og hefja framkvæmdir á mánudegi.

Bágborið rekstrarumhverfi í Reykjavík er ekki borgaryfirvöldum einum að kenna. Ríkið lætur ekki sitt eftir liggja. Dýrt er að stofna einkahlutafélög og skattaumhverfi að mörgu leyti óhagstætt. Launaumslag starfsmannsins gefur ekki fulla mynd af kostnaðinum sem honum fylgir. Þar vantar ofan á launatengdu gjöldin, eins og hið séríslenska tryggingagjald.

En meirihlutinn í borginni, með borgarstjóra í broddi fylkingar, þarf að sæta ábyrgð hvað rekstrarumhverfið í borginni varðar. Hann þarf að átta sig á því að borgin á að létta undir með atvinnulífinu eins og kostur er, en ekki öfugt. Farsæll rekstur er forsenda blómlegs mannlífs.

Það voru vonbrigði að heyra borgarfulltrúa Pírata bera því við að meirihlutinn hefði tiltölulega nýverið tekið við störfum. Það er einfaldlega ódýr fyrirsláttur. Hennar flokkur hefur verið við völd síðasta hálfa áratug, og borgarstjóri með hléum nánast frá aldamótum.

Stjórnmálamenn verða að sæta ábyrgð, en ekki benda í sífellu á fyrirrennara sína. Fyrrverandi pólitíkusar gegna ekki embættum og sæta ekki ábyrgð. Það gera hins vegar þeir sem hverju sinni eru kjörnir fulltrúar. Ábyrgðin er þeirra.

Það er meirihlutans að grípa til áþreifanlegra aðgerða til að bæta rekstrarumhverfið í borginni. Fyrsta skrefið er að hlusta á fólk og fyrirtæki.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×