Skoðun

Ólöglegir vextir og óraunhæfar væntingar

Már Wolfgang Mixa skrifar
Tveir stærstu lífeyrissjóðir landsins ákváðu í sumar að hætta notkun á áður auglýstum viðmiðum verðtryggðra íbúða­lána með breytilegum vöxtum. Mikið var deilt um þá ákvörðun, meðal annars vegna þess að nýlegir kjarasamningar áttu að stuðla að lækkun vaxta. Eitt hefur ekki farið hátt í þeirri umræðu en það er að í 34. grein laga um fasteignalán til neytenda kemur fram að lánveitendur megi einungis miða breytilega vexti við skýr viðmið, sem í tilfelli ofangreindra lána voru markaðsvextir íbúðabréfa. Lífeyrissjóðirnir hafa í fjöldamörg ár auglýst þau viðmið á heimasíðu sinni en hafa nú breytt þeim með lakari vaxtakjörum til þeirra sem tóku þá áhættu að vaxtastig gæti allt eins hækkað eins og lækkað. Því er þessi viðsnúningur sjóðanna að mínu mati ólöglegur. Ég bíð eftir að Neytendastofa bregðist við þessu.

Ein þeirra raka sem fram komu af hálfu lífeyrissjóðanna voru að vaxtastig væri orðið svo lágt að það væri ekki í þágu sjóðanna að lækka vaxtakjör enn frekar. Það eru undarleg rök þar sem þeir stýra sjálfir að stórum hluta vaxtastiginu í landinu, sem vextir ofangreindra húsnæðislána miðast við. Þetta ætti þó ekki að hafa komið lífeyrissjóðunum alveg á óvart. Ég og dr. Ólafur Margeirsson vöruðum ítrekað við í upphafi þessa áratugar að þær forsendur að raunávöxtun framtíðarinnar yrði 3,5% árlega væru ekki lengur fyrir hendi, meðal annars á síðum Fréttablaðsins. Í einni slíkri grein skrifaði ég: Hægt er að horfast í augu við þær staðreyndir að í óbreyttu ástandi eru framtíðarvæntingar óraunhæfar. Slíkt kallar á endurmat lífeyrissparnaðar. Slíkt endurmat ætti þó ekki að knýja lífeyrissjóði til þess að brjóta lög í garð lántaka þeirra. Það að þeir grípi til slíkra ráðstafana hlýtur hins vegar að vera aðvörun um að sú prósenta sem í dag er lögð í lífeyri sé síst of há.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×