Skoðun

Schengen

Davíð Stefánsson skrifar
Líkt og var með þriðja orkupakkann á sínum tíma er hætt við vaxandi undiröldu gegn aðild Íslands að Schengen-samstarfinu. Nýleg orðræða talsmanna lýðhylli í greinaskrifum og í útvarpi lýsir efasemdum og jafnvel andstöðu gegn samstarfinu.

Það er því full þörf á staðfestu og varðstöðu stjórnmálamanna um þetta mikilvæga mál.

Schengen-samstarfið, sem tók gildi með samningi 2001, er samstarf Evrópuríkja á sviði landamæraeftirlits og löggæslu sem byggir á Schengen-samningnum. Markmiðið er að auðvelda ferðir fólks innan Evrópu og tryggja öryggi borgaranna með samvinnu.

Norðurlöndin fimm ákváðu árið 1996 að taka þátt í samstarfinu enda höfðu þau í áratugi leyst ríkisborgara annarra Norðurlanda undan skyldu til að hafa í höndum vegabréf og dvalarleyfi við dvöl í öðru norrænu landi en heimalandinu. Norræna vegabréfasambandið féll að vissu leyti inn í Schengen-samstarf Evrópusambandsins.

Schengen-samstarfið felst í grundvallaratriðum í tvennu. Annars vegar afnámi vegabréfaskoðunar á innri landamærum þátttökuríkjanna og hins vegar mótvægisaðgerðum, sem felast einkum í samræmdum reglum um eftirlit á ytri landamærum Schengen-svæðisins. Reglur um vegabréfsáritanir hafa verið samræmdar þannig að áritun í einu aðildarríki gildir í þeim öllum. Þá er samvinna lögreglu ríkjanna í baráttu gegn alþjóðlegri glæpastarfsemi auðvelduð með rekstri sameiginlegs upplýsingakerfis sem geymir upplýsingar um eftirlýsta einstaklinga og framsalsbeiðnir.

Að auki hefur Ísland, í gegnum Schengen-samstarfið, aðild að Landamæra- og strandgæslustofnun Evrópu (Frontex). Flugvélar og varðskip Landhelgisgæslunnar hafa tekið þátt í verkefnum Frontex í áraraðir.

Talsmenn lýðhylli víða um Evrópu eru óþreytandi að benda á þær fordæmalausu áskoranir sem Schengen-­samstarfið hefur sætt síðustu ár vegna fjölgunar flóttamanna og vegna aukinnar öryggisógnar frá hryðjuverkaárásum. En þessar áskoranir eru ekki rök gegn samvinnu. Þvert á móti sýna þær fram á nauðsyn alþjóðasamvinnu, ekki síst fyrir smærri þjóðir.

Áskoranirnar felast einnig í fjölgun ferðamanna. Sú þróun kallar á upplýsingar til að tryggja öryggi. Það er galið að ætla að Íslendingar geti sinnt eftirliti einir og sér óháð samvinnu við aðra. Miðlun upplýsinga og virk alþjóðasamvinna lögreglu er okkur nauðsyn. Það fæst með Schengen-samstarfinu.

Það þýðir þó ekki að samstarfið eða upplýsingakerfi þess sé hafið yfir gagnrýni. Ör þróun í upplýsingatækni og alþjóðaáskoranir kalla á sífellt endurmat og aðlögun.

Í þeirri þingmálaskrá sem liggur fyrir 150. löggjafarþingi hefur dómsmálaráðherra listað nokkur mál tengd Schengen-samstarfinu. Þar á meðal að breyta á lögum um Schengen-upplýsingakerfið og kynna útgáfu og notkun nafnskírteina sem jafnframt væru ferðaskilríki á Schengen-svæðinu.

Það er mikilvægt að nýr ráðherra dómsmála sendi skýr skilaboð um stuðning við Schengen-samstarfið. Þannig stendur hún vörð um íslenska hagsmuni og öryggi.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×