Skoðun

Tímamótaverkefni

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir skrifar
Í dag verða kynnt tvö tímamótaverkefni í ferðaþjónustu sem mikil vinna hefur verið lögð í á undanförnum mánuðum og misserum: Framtíðarsýn og Jafnvægisás. Framtíðarsýn ferðaþjónustunnar til ársins 2030 segir okkur hvert við viljum stefna með þessa undirstöðuatvinnugrein.

Svarið er skýrt: Við viljum að ferðaþjónustan verði leiðandi í sjálfbærri þróun. Við viljum að hún verði arðsöm og samkeppnishæf. Og við viljum að hún verði í sátt við land og þjóð, hafi jákvæð áhrif á nærsamfélagið og virði þolmörk áfangastaða. Leiðarljósin eru fleiri en öll bera þau að sama brunni sjálfbærrar þróunar.

Framtíðarsýnin og leiðarljósin voru unnin í sameiningu af ráðuneyti ferðamála, Samtökum ferðaþjónustunnar og Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Það er ekki endilega sjálfgefið að þessir aðilar séu sammála um hvert beri að stefna og því er gleðilegt að góður samhljómur var um niðurstöðuna.

Til að mæla árangurinn höfum við sett niður ákveðin markmið um árleg útgjöld ferðamanna, viðhorf Íslendinga til greinarinnar, einkunnagjöf gesta okkar (svokallað meðmælaskor) og virka álagsstýringu á áfangastöðum. En það er ekki nóg að vita hvert við viljum fara. Við þurfum líka að hafa áreiðanlegt og ítarlegt mat á því hvar við erum stödd. Og þar kemur Jafnvægisásinn til sögunnar. Jafnvægisás ferðaþjónustunnar er umfangsmikil úttekt á því hvar ferðaþjónustan stendur gagnvart sjálfbærri nýtingu. Hún er því eins konar „Hafró-skýrsla“ fyrir ferðaþjónustuna, með þeim fyrirvara að þetta er að sjálfsögðu fyrsta útgáfa sem á eftir að þróa og bæta á komandi árum. Mat hefur verið lagt á yfir sextíu mælikvarða sem spanna efnahagslífið, samfélagið og náttúruna. Í þessu felst ekki bara tala eða einkunn heldur líka mat á því hvort viðkomandi mælikvarði sé undir eða yfir þolmörkum. Vel á annað hundrað manns komu að þessu verkefni undir verkstjórn verkfræðistofunnar EFLU og ég vil þakka öllum fyrir metnaðarfullt starf.

Hér eru komin þýðingarmikil stjórntæki fyrir atvinnugreinina sem tryggja að sú vinna sem er fram undan skili okkur áfram veginn, í átt að settu marki.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×