Skoðun

Sofðu rótt

Lára G. Sigurðardóttir skrifar
Til er sjúkdómur, Fatal Familial Insomnia, sem dregur fólk til dauða. Svefnleysi ágerist þangað til viðkomandi hættir einn daginn að geta sofið. Hann á erfitt með að einbeita sér, verður gleyminn og fær ofskynjanir – auk þess sem kvíði og þunglyndi sækir á. Þótt sjúkdómurinn sé afar fátíður gefur hann okkur mikilvæga innsýn í áhrif svefnleysis.

Nú eru skuggalega margir unglingar sem sofa einungis rúma sex tíma sem er langt frá því að vera heilbrigt þegar æskilegur svefntími þeirra eru níu tímar. Þarf engan að undra að þeir þambi örvandi drykki til að komast í gegnum daginn, sem dregur dilk á eftir sér. Það er auðvelt að lenda í vítahring svefnleysis og örvandi drykkja. Þegar maður fær ónógan svefn þá sækir maður frekar í örvandi efni og þegar maður er með of mikið af örvandi efnum í líkamanum þá sefur maður verr.

Örvandi drykkir innihalda venjulega koffín og önnur efni sem skerða svefngæði. Ef þú færð þér orkudrykk seinnipart dags þá er helmingur koffíns enn í blóðinu þegar kemur að háttatíma en koffín hindrar m.a. að boðefnið adenósín geti sagt heilanum að það sé kominn svefntími. Börn eru næmari fyrir áhrifum koffíns og eiga alls ekki að neyta örvandi drykkja enda sérðu á umbúðunum, ef grannt er skoðað, að þeir eru ekki ætlaðir yngri en 20 ára.

Það þarf ekki að vera flókið að hjálpa unglingunum að sofa rótt, t.d. aftengja internetið á kvöldin, setja símtæki í lokaðan skáp og ræða við þau um svefn. Innflytjendur örvandi drykkja geta merkt betur umbúðirnar með aldurstakmarki og verslunareigendur sett stífari reglur um sölu til unglinga.

Þangað til næst, sofðu rótt – því það er fátt jafn endurnærandi og að vakna eftir góðan svefn.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×