Skoðun

Samráð um stjórnarskrá

Katrín Jakobsdóttir skrifar
Þarf nokkuð að endurskoða stjórnarskrána? spurði mig maður um daginn, eftir að ný skoðanakönnun um afstöðu almennings til stjórnarskrárinnar birtist í fjölmiðlum. Skoðanakönnunin er liður í nýrri leið við almenningssamráð sem er mikilvægur hluti af vinnu formanna stjórnmálaflokkanna á þingi við heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar. Könnunin er annars vegar sjálfstæð vísbending um viðhorf almennings til ýmissa hluta sem tengjast stjórnarskrá. Hins vegar undanfari svokallaðs rök­ræðufundar sem haldinn verður 9.-10. nóvember með þátttöku almennings hvaðanæva af landinu.

Í upphafi þessa kjörtímabils óskaði ég eftir því við formenn allra stjórnmálaflokka á Alþingi að við ynnum saman að heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar á tveimur kjörtímabilum. Verkinu var skipt upp í áfanga og miðað við að byggt yrði á þeirri umfangsmiklu vinnu sem unnin hefur verið síðustu ár og áratugi. Í því samhengi skiptir miklu að fá skýra mynd og skilning á viðhorfi almennings en nýjar aðferðir í almenningssamráði voru einnig hluti af þessari áætlun. Ég bind vonir við að þær muni ekki aðeins skila uppbyggilegum niðurstöðum inn í vinnuna við endurskoðun stjórnarskrárinnar heldur einnig geta reynst vera aðferðafræði sem má viðhafa víðar í opinberri stefnumótun.

Almenningssamráð snýst ekki eingöngu um að birta frumvörp á ver­aldar­vefnum eða halda þjóðaratkvæðagreiðslur um einstök atriði sem má kalla hvorn sinn enda almannasamráðs. Á því litrófi eru hins vegar margar aðferðir og mikilvægt að Alþingi og stjórnvöld nýti sér þær, ekki síst við úrlausn mikilvægra mála, eins og til dæmis við stjórnarskrárbreytingar. Í skoðanakönnuninni kom í ljós að 37% svarenda væru ánægð með stjórnarskrána en 27% óánægð. 36% voru hvorki ánægð né óánægð. Það breytir því ekki að ríkur vilji er til að endurskoða stjórnarskrána. Þannig kemur í ljós að 90% svarenda telja mikla þörf á stjórnarskrárákvæði um auðlindir í þjóðareign, 84% telja mikla þörf á ákvæði um umhverfisvernd og 70% telja þörf á nýjum ákvæðum um þjóðarfrumkvæði og íslenska tungu. Þannig að ég svaraði manninum með afdráttarlausu já-i!

En könnunin sjálf er einungis fyrsta skref í umfangsmeiri rannsókn. Ætlunin er að virkja nýjar aðferðir við almenningssamráð með rökræðu­fundinum sem áður var nefndur. Þar mun fólk geta átt samræður við sérfræðinga og aðra um ýmis stjórnarskrártengd málefni og er ætlunin síðan að meta hvort þær samræður breyta skoðunum eða viðhorfum fólks í viðkomandi máli. Markmiðið er þannig að fá betri mynd af viðhorfi almennings og dýpri skilning á því hvað ræður því, til dæmis af hverju fólk sem er ánægt með stjórnarskrána sýnir einnig ríkan vilja til að endurskoða hana. Stjórnvöld víða um heim hafa nýtt þessa aðferðafræði með góðum árangri og þar er nærtækasta dæmið frá nágrönnum okkar í Írlandi sem héldu slíkan rökræðufund í aðdraganda breytinga á þungunarrofslöggjöf.

Almenningssamráðið er skipulagt í samstarfi við fræðifólk í Háskóla Íslands. Því til viðbótar hefur Háskólinn ákveðið að standa fyrir svokallaðri lýðvistun í samstarfi við Betra Ísland þar sem allir sem áhuga hafa geta komið sjónarmiðum á framfæri um ýmis stjórnarskrártengd málefni sem síðan verða nýtt á rökræðufundinum.

Samkvæmt gildandi stjórnarskrá verður stjórnarskrá ekki breytt nema þannig að Alþingi samþykki breytingarnar, boðað sé til kosninga, og nýtt Alþingi staðfesti breytingarnar. Þess vegna er svo mikilvægt að vinna að sem breiðastri samstöðu alþingismanna um breytingar á stjórnarskrá. Stjórnmálin skulda almenningi löngu tímabærar breytingar á þessu grundvallarplaggi og það er skylda okkar að leggja okkur öll fram við að ljúka þeirri vinnu með sóma.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×