Skoðun

Viltu nýja stjórnar­skrá eða þá gömlu?

Gústav Adolf Bergmann Sigurbjörnsson skrifar
Nú er ég einn af þeim sem er mjög ósáttur við að þingið hafi ekki klárað stjórnarskrármálið á sínum tíma og að við séum ekki komin með nýja stjórnarskrá í dag. Ég hefði líka kosið að það opna ferli sem núna hefur verið sett af stað snerist um að endurbæta nýju stjórnarskrána fremur en þá gömlu.

Þannig að ég skil pirringinn gagnvart stöðunni.

En svona er staðan í dag. Sú gamla er enn í gildi og það er ekki að fara að breytast í bráð. Að minnsta kosti ekki á meðan það er ekki meirihluti á Alþingi fyrir að innleiða nýju stjórnarskrána.

Nú er forsætisráðherrann okkar búin að leggja gífurlega vinnu í þennan málaflokk, þegar hún hefði getað látið þetta liggja ofan í skúffu eins og þær stjórnir sem hafa verið við völd síðan við vorum síðast í ríkisstjórn. Enda er vinna að nýrri stjórnarskrá áríðandi verkefni í hugum Vinstri grænna. Nýja stjórnarskráin væri einfaldlega ekki til ef ekki hefði verið fyrir þá vinnu sem átti sér stað í stjórnartíð Vinstri grænna og Samfylkingarinnar og vilja þeirra til þess að láta almenningi í té tækifæri til þess að skapa sér sína eigin stjórnarskrá.

Forsætisráðuneytið hefur sett á fót samráðsvef um stjórnarskrána í samráði við Íbúa ses. og rannsóknarhóp öndvegisverkefnisins Lýðræðisleg stjórnarskrárgerð við Háskóla Íslands. Þegar við blasir að nýrri stjórnarskrá verður ekki komið í gegn á núverandi þingi, þá er þeim mun mikilvægara að berjast fyrir þeim aðkallandi breytingum sem þarf að gera á gömlu stjórnarskránni.

Nú höfum við þessa opnu gátt, til að setja fram hugmyndir, ræða þær og mæla með og á móti.

Þarna er búið að leggja margt inn og ræða. Auðlindaákvæði og náttúruvernd, breytingar á breytingarákvæði stjórnarskrár, umræða um stöðu forsetaembættisins (meðal annars aldursákvæðið) og kjördæmaskipan.

Því meiri umræða og gagnrýni sem fram fer á þessum vef, því meiri vigt hefur þetta ferli. Það á eftir að skila sér í vinnunni sem er framundan en hefur líka þau áhrif að ýta við stjórnvöldum til að nota aðferðir sem þessar til þess að ná til almennings, sérstaklega í málum er varða okkur öll.

Tökum þátt, hvort sem það felst í að leggja orð í belg eða látum duga að kjósa upp það sem okkur hugnast og niður það sem okkur líst alls ekki á!

Samráðsvefinn finnið þið hér

Vefurinn er virkur til 20. október.

Höfundur er ritari Vinstri grænna í Reykjavík.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×