Skoðun

MSN - Skilaboð til Alþingis

Sigrún Jónsdóttir skrifar
Á síðastliðnum tíu árum hafa þrjú lánasjóðsfrumvörp verið lögð fyrir Alþingi, enn sem komið er hefur ekkert þeirra verið samþykkt. Í gær fór fram fyrsta umræða á Alþingi um frumvarp til laga um Menntasjóð námsmanna (MSN) sem ætlað er að koma í stað Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Stúdentar hafa lengi beðið eftir styrkjakerfi sem er byggt upp að norrænni fyrirmynd. Ljóst er að núverandi kerfi þjónar ekki tilgangi sínum og er löngu tímabært að nýtt og betrumbætt kerfi líti dagsins ljós.

Eins og mennta- og menningarmálaráðherra hefur sjálf sagt þá er menntakerfið eitt mikilvægasta jöfnunartæki sem við höfum. Aðgengi allra að háskólanámi á að vera tryggt og spilar lánasjóðurinn þar lykilhlutverk. Markmiðið með lögum um MSN er að tryggja þeim sem falla undir lögin, tækifæri til náms án tillits til efnahags og stöðu að öðru leyti, með því að veita námsmönnum fjárhagslega aðstoð í formi námslána og styrkja.

Með MSN eru lagðar fram talsverðar breytingar frá núverandi kerfi. Veigamestu breytingarnar felast í innleiðingu beins styrkjakerfis og breyttum vaxtakjörum. Lánþegar sem ljúka prófgráðu innan tilgreinds tíma geta fengið námsstyrk sem nemur 30% af höfuðstóli námsláns þeirra og sömuleiðis verða veittir styrkir fyrir framfærslu barna sem er mikil kjarabót. Á móti kemur að vextir verða breytilegir markaðsvextir og því verða kjörin afar ólík núverandi vaxtakjörum, þar sem vextir hafa verið fastir í 1% frá árinu 1992.

Það er útgefið markmið ríkisstjórnarinnar að blása til stórsóknar í menntamálum, enda skilar hver króna sem stjórnvöld greiða til náms á háskólastigi sér áttfalt til baka. Vandfundnir eru þeir fjárfestingarmöguleikar sem ríkið hefur sem skila betri ávöxtun en fjárfesting í menntun. Alþingi fær hér eftirsóknarvert tækifæri til að auka enn á fjárfestingu í menntakerfinu og framtíðarkynslóðum landsins með því að setja þak á vaxtastig lána hjá Menntasjóði námsmanna.

Íslenskt hagkerfi á ekki fallega sögu að baki sér þegar kemur að efnahagslegum stöðugleika, sem veldur því að háværar viðvörunarbjöllur hljóma í eyrum stúdenta, nú þegar ætlunin er að í fyrsta lagi hækka vexti og í öðru lagi gefa þá í hendur markaðsins. Ljóst er að þjóðhagslegur ávinningur af frumvarpinu er mikill, enda heildarmyndin góð, en hækkun vaxtastigs er óásættanleg og hefur sú afstaða stúdenta ætíð legið fyrir.

Greinarhöfundur er forseti Landssamtaka íslenskra stúdenta - LÍS og er greinin hluti af herferð samtakanna um fjárfestingu í menntun vegna frumvarps um Menntasjóð námsmanna.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×