Skoðun

Dal­brautar­þorpið mitt og þitt

Rannveig Ernudóttir skrifar

Í dag, 6. nóvember, eru liðin fjörutíu ár frá því að Dalbraut 21-27 hóf starfsemi sína. Síðan þá hefur húsið, sem eru þjónustuíbúðir aldraðra og félagsstarf fyrir fullorðna, starfað að megninu til í þeirri mynd. Frá upphafi var hér sólarhringsþjónusta og félagsstarf ásamt hárgreiðslu- og fótaaðgerðarstofu. Fram til ársins 2002 var hér einnig starfrækt dagdvöl.

Við Dalbraut 14-27 standa nokkur fjölbýlishús. Annars vegar eru það bláu húsin við Dalbraut 14-20 og svo gráu húsin með gulu svölunum við Dalbraut 21-27. Mitt á milli Dalbrautar 18 og 20 er svo rekin félagsmiðstöð af Reykjavíkurborg. Beggja vegna götunnar er því haldið uppi félagsstarfi fyrir fullorðna og hefur heitið, Dalbrautarþorpið, fests við það. 

Dalbraut 18-20 var byggð af Samtökum aldraðra og var fyrst afhent árið 1987. Á sama tíma hófst þar einnig félagsstarf í húsinu. Síðar meir bættu samtökin við tveimur húsum til viðbótar, árin 1999 og 2003.

Þar til árið 1999 var starfið hér í Dalbrautarþorpinu skilgreint sem starfsemi aldraðra. Þá var því breytt í félagsstarf fullorðinna. Það þýðir að starfið er í boði fyrir alla sem eru 18 ára og eldri og er því rík hefð og saga fyrir félagsstarfi í Dalbrautarþorpinu. Sú saga felur m.a. í sér ýmis konar samsarf við leik- og grunnskólana, kirkjurnar og aðra nágranna. Við stefnum að sjálfsögðu á að viðhalda slíku samstarfi áfram og hlökkum til næstu 40 ára hér í hverfinu.

Meðal þess sem við gerum hér í Dalbrautarþorpinu er að spila pílu, bridge og félagsvist, boccia og borðspil. Við erum með vöfflukaffi og bingó einu sinni í mánuði, söngstund annan hvern fimmtudag og prjónakaffi eru þrisvar í viku. Við fáum fræðslu og góða gesti í heimsókn, m.a. þau Óla og Emblu, en Embla er labradortík sem er dáð og elskuð í húsinu og er Óli hennar fylgdarmaður í tilverunni.  Einnig förum við í ýmsar ferðir og tökum þátt í samfélagsverkefnum. Við rekum litla verslun sem er opin þrisvar í viku og þessa dagana erum við að byggja upp glæsilega íþróttaaðstöðu. Frekari upplýsingar um starfið okkar má finna á facebook síðu starfsins, Félagsstarf Dalbraut.

Í tilefni af afmælinu hefur húsið fengið ný húsgögn, en fyrir var mikið af upprunalegum húsgögnum. Þessi gömlu höfðu ákveðin sjarma yfir sér en þau voru engu að síður orðin lúin. Nýju húsgögnin eru góð upplyfting þar sem þau eru litrík og létt. 

Í dag er opið hús hjá okkur milli kl. 14 og 16 og mun Bergþór Pálsson syngja fyrir okkur kl. 15. Verið öll velkomin í heimsókn í dag sem og aðra daga, því þú kæri nágranni, ert alltaf velkominn. 

Því Dalbrautarþorpið er þitt og mitt.

Höfundur er verkefnastjóri félagsstarfs.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×