Varaði Mourinho við Lukaku: „Hann er stórt barn“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 18. nóvember 2019 12:00 Lukaku lék undir stjórn Mourinhos hjá Manchester United og einnig til skamms tíma hjá Chelsea. vísir/getty
Steve Walsh, fyrrverandi yfirmaður knattspyrnumála hjá Everton, varaði José Mourinho við því að kaupa Romelu Lukaku til Manchester United sumarið 2017. Hann lýsti belgíska landsliðsframherjanum sem „stóru barni.“ Walsh og Mourinho þekkjast vel en þeir störfuðu saman hjá Chelsea á árum áður. Walsh fór síðan til Leicester og átti stóran þátt í Englandsmeistaratitli liðsins 2016. Hann er talinn hafa uppgötvað leikmenn á borð við N'Golo Kanté og Riyad Mahrez. Walsh var svo ráðinn til Everton þar sem hann starfaði þegar United keypti Lukaku frá félaginu á 75 milljónir punda. Walsh segir að Mourinho hafi hunsað varnaðarorð sín. „Ég man að ég sagði við Jose: Þú verður að passa þig á Lukaku. Hann er stórt barn,“ sagði Walsh í samtali við The Athletic. „Hann sagðist geta haft stjórn á honum en ég held það hafi ekki gengið upp.“ Walsh hefur heldur ekki mikið álit á vini Lukaku, Paul Pogba. „Ég er ekki hrifinn af svona leikmönnum. Þeir hugsa meira um sjálfa sig en liðið. Ég hefði ekki snert þá. Þótt þeir séu góðir leikmenn er ekki þar með sagt að liðið verði gott.“ Manchester United seldi Lukaku til Inter í sumar. Hann hefur blómstrað hjá ítalska liðinu og skorað grimmt.
Enski boltinn Mest lesið Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Enski boltinn „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ Enski boltinn Geir fer aftur í Vesturbæinn Íslenski boltinn Enn erfiðara að komast á heimsleikana í CrossFit á næsta ári Sport Tímabært að breyta til Handbolti Tólf leikmenn komnir til KR Íslenski boltinn Blóðug hlaupaferð hjá Guðlaugu Eddu Sport Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Fótbolti Kallaði dómarann tík og rúmlega það Körfubolti Fleiri fréttir Ekkert lið með meiri forystu síðan Cantona var upp á sitt besta Segist enn ekki hafa fengið samningstilboð frá Liverpool „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Fjórtán ára á æfingum með Arsenal Fær konuna til að eiga við draugana og ætlar ekki að pissa í hornin Amorim fullur sjálfstrausts á fyrsta blaðamannafundinum Meistararnir og Skytturnar missa út lykilmenn Lewandowski fékk ekki að fara til Man. Utd Ed Sheeran hjálpaði Ipswich að ná í leikmann rétt fyrir Taylor Swift tónleika Guardiola samdi til ársins 2027 Rannsókn á hegðun David Coote enn í fullum gangi Tuchel „stelur“ Hilario frá Chelsea og tekur hann inn í teymið Amorim vill að United fái Gomes aftur Martröð fyrirliða Chelsea heldur áfram Neville gagnrýnir Bandaríkjaför Rashford og Casemiro Sagður hafa tvo leiki til að bjarga starfinu Fær ekki að eyða í leikmenn í janúar Liverpool og Newcastle berjast um Mbeumo Fengu ljót skilaboð eftir óléttumynd: „Fyrirmunað að skilja þessi viðbrögð“ Guardiola framlengir við Man. City Klopp vildi fá Antony í stað Salah Tengdasonur Keane skoraði fyrir enska landsliðið Heimildaþáttaröð um lið Rooney og Guðlaugs Victors Sjá meira