Skoðun

Auð­veldum okkur lífið í jóla­ver­tíðinni

Kristbjörn Hilmir Kjartansson skrifar
Jólavertíðin í verslun er að ganga í garð með tilheyrandi traffík í verslunum landsins. Jólavertíðin er mesti háannatími verslunarfólks ár hvert þegar landsmenn fylkja liði í verslanir í leit að glaðningum í anda hátíðarinnar handa vinum og vandamönnum. Á sama tíma fjölgar starfsfólki verslana mikið vegna aukinna verkefna og fjölgunin kemur oft úr röðum skólafólks í jólavinnu og verslunarfólks sem reimar aftur á sig skóna til þess að taka þátt í veislunni. Sjálfur hef ég heyrt að þetta sé skemmtilegasti tími ársins til að vinna í verslunum.

Síðustu ár hefur jólaverslun færst mikið yfir í netverslun sem hefur breytt ýmsu fyrir verslanir á þessum árstíma. Stóru alþjóðlegu tilboðsdagarnir í nóvember og desember marka oft upphaf jólavertíðarinnar hjá neytendum sem margir hverjir nýta sér þessa tilboðsdaga til að hefja jólainnkaupin. Það er mikilvægt að vera vel undirbúin(n) til þess að þjónustan við viðskiptavini gangi vel fyrir sig og dýrmætt getur reynst að hafa hagkvæma og árangursríka lausn til að koma sendingum í póst.

Nýtum tímann rétt

Það getur verið vandasamt að tvinna saman verkefni sem felast í því að sinna viðskiptavinum í verslun, sinna pöntunum og senda vörur sem keyptar hafa verið í netverslun. Mikilvægt er að finna árangursríka og hagkvæma lausn til þess að geta boðið góða og hraða þjónustu á báðum vígstöðum en skv. könnunum vilja viðskiptavinir netverslana fá vörurnar sína afhentar eins fljótt og hægt er.

Eðli málsins samkvæmt er landinn oft stressaður á þessum tíma. Það er mikil umferð á götum úti og það hefur enginn tíma að missa. Landsmenn eru á leiðinni í verslunarleiðangur, göngutúr um bæinn, hitta vini og ættingja og svo mætti lengi telja. Það er ekki aðeins umferð á götum úti og verslunarmiðstöðvum heldur er einnig mikil umferð fólks á pósthúsum. Þegar starfsfólk verslana er sent á næsta pósthús með sendingar úr netverslun er hætta á að leiðangurinn taki lengri tíma en búist var við. Þetta getur valdið stressi verslunareigenda, verslunarstjóra, starfsmannsins sjálfs ásamt samstarfsmönnum þar sem álagið á aðra starfsmenn getur aukist við það að fækka fólki í styttri eða lengri tíma.



Hvað er til bragðs að taka?

Hvað geta verslanir gert ef það er ekki í boði að missa starfsmann í burtu með sendingar á pósthúsið? Fyrirtækjaþjónusta Póstsins býður verslunum og öðrum fyrirtækjum að fá sendil til sín þegar hentar sem sækir sendingar og póstleggur. Fyrirtækjaþjónustan er hagkvæm og árangursrík leið til að koma vörum úr netverslun hratt og örugglega í dreifingu. Verslanir þurfa eingöngu að skrá sendingar og merkja og sendill frá Póstinum sér um að koma sendingunum í dreifingu.

Með þessu getur verslunarfólk einbeitt sér að kjarnastarfsemi verslana og sinnt viðskiptavinum sínum. Minna stress – betri þjónusta.

Höfundur er viðskiptastjóri hjá Póstinum.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×