Jurgen Klopp um Sean Cox og níu stiga forystuna eftir sigurinn á Man. City Anton Ingi Leifsson skrifar 11. nóvember 2019 08:00 Klopp glaður í bragði í gær. vísir/getty
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, var eðlilega glaður í bragði eftir sigur Liverpool á ríkjandi meisturum, Manchester City, í stórleik helgarinnar í enska boltanum. Liverpool var komið með 2-0 forystu snemma leiks og sigurinn var aldrei í hættu en liðið skoruðu sitthvort markið í síðari hálfleiknum. „Við finnum ekki fyrir neinni pressu ef ég á að vera hreinskilinn. Að vera með níu stiga forystu er jákvætt en annað fólk mun segja að nú er það bara Liverpool sem getur tapað þessu. Það er mjög neikvætt viðhorf en ég get sagt ykkur það að okkur er alveg sama,“ sagði Klopp. „Í dag vorum við bara einbeittir á þennan leik og ekki á töfluna og hversu mörg stig við gátum verið fyrir framan City eftir leikinn. Það er sturlað að vera níu stigum fyrir framan City en er það mikilvægt að vera fyrstur í nóvember? Þú vilt vera fyrstur í maí.“Jurgen Klopp dedicates Liverpool victory over Man City to Sean Cox https://t.co/eox4jKOxtRpic.twitter.com/Tqfa9NzOO9 — Mirror Football (@MirrorFootball) November 10, 2019 Sean Cox, stuðningsmaður Liverpool, sem ráðist var á fyrir leik Liverpool gegn Roma í undanúrslitum Meistaradeildarinnar fyrir rúmu ári síðan var mættur á völlinn í gær. Hans fyrsti leikur eftir árásina. „Ég sá Sean eftir leikinn. Frábært! Það var mjög, mjög gaman. Hann var mjög ánægður að sjá mig og ég hélt ég hafi verið ánægður að sjá hann en við vorum líklega jafn glaðir.“ „Þetta var sérstakt og gott. Hann var með konuna og strákinn sinn með sér. Þetta var frábær dagur fyrir þau eins og þau óskuðu sér. Ég get sagt nú þegar að ef hann flytur til Liverpool þá fær hann ársmiða.“ „Það var mjög mikilvægt fyrir strákanna þegar þeir heyrðu að því að hann væri á leiðinni á völlinn og gæti horft á leikinn,“ sagði sá þýski í leikslok.STRIIIIIIIIIIIKE What a hit, @_fabinhotavares pic.twitter.com/xS6Vd0owBe — Liverpool FC (@LFC) November 10, 2019
Enski boltinn Mest lesið Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Enski boltinn „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ Enski boltinn Geir fer aftur í Vesturbæinn Íslenski boltinn Tímabært að breyta til Handbolti Enn erfiðara að komast á heimsleikana í CrossFit á næsta ári Sport Blóðug hlaupaferð hjá Guðlaugu Eddu Sport Kallaði dómarann tík og rúmlega það Körfubolti Verstappen áfram hjá Red Bull Formúla 1 Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Fótbolti Fleiri fréttir Segist enn ekki hafa fengið samningstilboð frá Liverpool „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Fjórtán ára á æfingum með Arsenal Fær konuna til að eiga við draugana og ætlar ekki að pissa í hornin Amorim fullur sjálfstrausts á fyrsta blaðamannafundinum Meistararnir og Skytturnar missa út lykilmenn Lewandowski fékk ekki að fara til Man. Utd Ed Sheeran hjálpaði Ipswich að ná í leikmann rétt fyrir Taylor Swift tónleika Guardiola samdi til ársins 2027 Rannsókn á hegðun David Coote enn í fullum gangi Tuchel „stelur“ Hilario frá Chelsea og tekur hann inn í teymið Amorim vill að United fái Gomes aftur Martröð fyrirliða Chelsea heldur áfram Neville gagnrýnir Bandaríkjaför Rashford og Casemiro Sagður hafa tvo leiki til að bjarga starfinu Fær ekki að eyða í leikmenn í janúar Liverpool og Newcastle berjast um Mbeumo Fengu ljót skilaboð eftir óléttumynd: „Fyrirmunað að skilja þessi viðbrögð“ Guardiola framlengir við Man. City Klopp vildi fá Antony í stað Salah Tengdasonur Keane skoraði fyrir enska landsliðið Heimildaþáttaröð um lið Rooney og Guðlaugs Victors Landsliðskonurnar eiga von á barni saman Sjá meira