Innlent

Lögreglan vill ná tali af þessum manni

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Upplýsingum má koma á framfæri við lögreglustöðina á Hverfisgötu 113-115 í Reykjavík í síma 444 1000. Upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Upplýsingum má koma á framfæri við lögreglustöðina á Hverfisgötu 113-115 í Reykjavík í síma 444 1000. Upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið [email protected] eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. vísir/vilhelm
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum á meðfylgjandi mynd.

Lögreglan vill ræða við manninn.Lögreglan
Lögreglan vill ná tali af manninum vegna máls sem hún hefur til rannsóknar.

Ekki kemur fram um hvaða mál ræðir.

Er hann vinsamlegast beðinn um að hafa samband við lögreglustöðina á Hverfisgötu 113-115 í Reykjavík.

Síminn þar er 444 1000.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.

Þar segir að ef einhverjir þekkja til mannsins, eða vita hvar hann er að finna, séu hinir sömu einnig beðnir um að hringja í lögregluna.

Er vísað til símanúmersins að ofan.

Upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið [email protected].

Eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Þótt myndin sé óskýr er talið að maðurinn sé klæddur í svarta, rennda íþróttapeysu (hvítan bol innan undir).

Þá er talið að hann sé í svörtum gallabuxum, strigaskóm og með eyrnalokk í hægra eyra. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×