Skoðun

Fjárlög næsta árs á einni mínútu

Bryndís Haraldsdóttir skrifar
Nýsamþykkt fjárlög næsta árs sýna hversu vel er búið að umræðu og afgreiðslu mála sem tengjast efnahagsstjórn landsins. Munar þar mestu um innleiðingu laga um opinber fjármál sem Sjálfstæðisflokkurinn hafði forystu um. Agi í áætlanagerð hins opinbera hefur aukist til muna enda hafa fjárlög aldreið verið afgreidd eins snemma og núna með fjárlög 2020. Öguð hagstjórn og langtímastöðugleiki er hagsmunamál allra.

Helstu áherslur fjárlaganna nú er að vinna gegn skammvinnri niðursveiflu í hagkerfinu, og það getum við með þann fjárhagslega styrk sem við höfum skapað með aga og góðum árangri undanfarin ár. Við getum haldið áfram uppbyggingu innviða og eflt grunnþjónustu ríkisins. Matsfyrirtæki hafa staðfest þennan góða árangur með hækkun lánshæfiseinkunnar ríkissjóðs. Hvergi hafa skuldir lækkað jafn hratt og á Íslandi. Staða ríkissjóðs er sterk og viðnámsþróttur hagkerfisins mikill.

Skattalækkanir og innviðauppbygging

Á næsta ári lækka skattar á einstaklinga og fyrirtæki. Skattalækkanir sem eru mikilvægt súrefni fyrir hagkerfið. Tekjuskattur einstaklinga lækkar um allt að 120 þúsund á ári, mest hjá þeim sem lægstar hafa tekjurnar. Tryggingargjaldið heldur áfram að lækka og mun lækka um 4,2 milljarða á næsta ári, en það jafnast á við um 450 ný störf.

Í stjórnarsáttmálanum er lögð rík áhersla á nýsköpun. Nýsköpunarstefna hefur litið dagsins ljós, skattar á hugverk hafa lækkað, endurgreiðslur vegna rannsóknar og þróunar hækkað og á næsta ára tekur til starfa nýr hvatasjóður fyrir nýsköpunardrifið frumkvöðlastarf. Sjóðnum Kríu er ætlað að tryggja samfellu í fjármögnunarumhverfi frumkvöðla og nýsköpunar.

Mikið átak hefur verið í samgöngumálum og átakið heldur áfram. Nú með enn auknu fé sérstaklega til umferðaröryggismála. Áfram er kraftur í uppbyggingu hjúkrunarheimila og uppbygging Landspítala heldur áfram. Leitar og björgunarþjónusta Landhelgisgæslunnar er stórbætt með fjárfestingu í nýjum þyrlum. Loks má nefna að aldrei hafi eins miklum fjármunum verið varið til umhverfismála og nú, m.a. til að fylgja eftir markvissri aðgerðaráætlun stjórnvalda í loftlagsmálum.

Hagstjórn síðustu ára hefur skapað svigrúm til vaxtalækkana nú þegar hægir á í hagkerfinu, sem er mikilvægt fyrir heimilin og fyrirtæki í landinu. Fjárlög næsta árs stuðla að stöðuleika og bæta lífskjör almennings og slík fjárlög eru góð fjárlög.

Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokks.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×