Pochettino með augun á starfi Solskjær á Old Trafford Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. desember 2019 10:30 Mauricio Pochettino. Getty/ Michael Regan
Mauricio Pochettino, fyrrum knattspyrnustjóri Tottenham, hefur mikinn áhuga á því að komast í starf Norðmannsins Ole Gunnar Solskjær hjá Manchester United. Manchester Evening News segir að Arsenal, Real Madrid og Bayern München hafi öll áhuga á að ráða Pochettino en að Argentínumaðurinn hafi sjálfur mestan áhuga á að taka við liði Manchester United. Pochettino fylgist því örugglega vel með leik Manchester United og Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í kvöld en með slæmum úrslitum á heimavelli gæti hitnað enn meira undir Solskjær.Report: Pochettino has his sights set on Solskjaer's Man United job https://t.co/KLkudhMQrp — beIN SPORTS USA (@beINSPORTSUSA) December 3, 2019Pochettino var óvænt rekinn frá Tottenham á dögunum eftir fimm og hálfs árs starf en er nú kominn aftur til Englands eftir að hafa farið í frí heim til Argentínu eftir brottreksturinn. „Það besta í stöðunni var að koma til Argentínu og fá smá frið. Síminn minn virkar ekki almennilega hér og ég hef ekkert verið að fylgjast með samfélagsmiðlum eða fréttum. Ég kom hingað í tíu daga frá en er síðan á leiðinni aftur til London. Ég hafði ekki langan tíma til að jafna mig en ég ætla að hugsa jákvætt og hlusta eftir tilboðum,“ sagði Mauricio Pochettino í viðtali við Fox Sports í Argentínu. Hann er nú kominn aftur til Englands þótt að það sé ekki vitað hvort hann verði meðal áhorfanda á Old Trafford í kvöld. „Ég ætlað mér að finna mér lið í Evrópu,“ sagði Mauricio Pochettino við komuna til Englands en beIN SPORTS segir frá.
Enski boltinn Mest lesið Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Enski boltinn „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ Enski boltinn Geir fer aftur í Vesturbæinn Íslenski boltinn Tólf leikmenn komnir til KR Íslenski boltinn Enn erfiðara að komast á heimsleikana í CrossFit á næsta ári Sport Tímabært að breyta til Handbolti Blóðug hlaupaferð hjá Guðlaugu Eddu Sport Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Fótbolti Ekkert lið með meiri forystu síðan Cantona var upp á sitt besta Enski boltinn Fleiri fréttir Ed Sheeran biðst afsökunar á að hafa verið óboðinn gestur í viðtali við Amorim Ekkert lið með meiri forystu síðan Cantona var upp á sitt besta Segist enn ekki hafa fengið samningstilboð frá Liverpool „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Fjórtán ára á æfingum með Arsenal Fær konuna til að eiga við draugana og ætlar ekki að pissa í hornin Amorim fullur sjálfstrausts á fyrsta blaðamannafundinum Meistararnir og Skytturnar missa út lykilmenn Lewandowski fékk ekki að fara til Man. Utd Ed Sheeran hjálpaði Ipswich að ná í leikmann rétt fyrir Taylor Swift tónleika Guardiola samdi til ársins 2027 Rannsókn á hegðun David Coote enn í fullum gangi Tuchel „stelur“ Hilario frá Chelsea og tekur hann inn í teymið Amorim vill að United fái Gomes aftur Martröð fyrirliða Chelsea heldur áfram Neville gagnrýnir Bandaríkjaför Rashford og Casemiro Sagður hafa tvo leiki til að bjarga starfinu Fær ekki að eyða í leikmenn í janúar Liverpool og Newcastle berjast um Mbeumo Fengu ljót skilaboð eftir óléttumynd: „Fyrirmunað að skilja þessi viðbrögð“ Guardiola framlengir við Man. City Klopp vildi fá Antony í stað Salah Tengdasonur Keane skoraði fyrir enska landsliðið Sjá meira