Skoðun

Tíföldum listamannalaunin

Ágúst Ólafur Ágústsson skrifar

Íslendingar hafa að undanförnu notið fjölmargra streymistónleika tónlistarfólks s.s. Helga Björns, Páls Óskars, Bubba, Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Hljómahallar, Aldrei fór ég suður, streymissýninga leikhúsanna og RÚV ásamt upplestrum, svo eitthvað sé nefnt. Það er ekki síst á erfiðum tímum sem fólk áttar sig á gildi og mikilvægi listarinnar. Án listar erum við nálægt því að uppfylla einungis einföldustu kröfur dýraríkisins. Nú er hins vegar listin í hættu, a.m.k. listafólkið okkar.

Nú er búið að banna nær alla viðburði sem stétt listamanna reiðir sig á. Á þetta við leiksýningar, tónleika, árshátíðir, upptökur, bíósýningar og listasýningar en einnig ýmsan rekstur veitingahúsa og annarra staða sem bjóða upp á lifandi list af öllu tagi. Takmarkanir eru jafnvel á jarðarförum og brúðkaupum. Samkvæmt nýjustu fréttum verður bann á viðburðum hugsanlega langt eftir árinu og þar með talið bæjar- og menningarhátíðum sumarsins. Það yrði gífurlegt fjárhagslegt tjón fyrir tugþúsundir landsmanna.

Listafólk stendur með okkur, stöndum nú með þeim

Listafólk gefur ekki einungis lífinu gildi heldur er þetta stétt sem iðulega gefur vinnu sína þegar mikið liggur við. Við reiðum okkur á þetta ágæta fólk hvort sem það er í gleði eða sorg, við afþreyingu eða upplyftingu andans. Nú þurfa listamenn á okkur að halda. Starfsgrundvöllur þeirra er farinn. Ef listin á að lifa þurfum við hin því að gera eitthvað.

Það vill svo til að við höfum nú þegar kerfi listamannalauna. Í ár fá 325 listamenn af 1.544 umsækjendum rúmlega 407.000 kr. á mánuði í listamannalaun, yfirleitt í 3-12 mánuði. Listamannalaun eru fyrir hönnuði, myndlistarfólk, rithöfunda, sviðslistafólk, tónlistarflytjendur og tónskáld.

Listamannalaun kosta hið opinbera nú um 650 milljónir kr.

Ég legg hér til að við margföldum listamannalaunin með því að láta þau ná til 10 sinnum fleiri listamanna en nú er, eða til um 3.500 listamanna. Sá fjöldi er svipaður fjöldi þeirra sem er nú sjálfstætt starfandi í menningu á Íslandi.

Kostar svipað og 1% atvinnuleysi

Slíkt myndi kosta um 6,5 milljarð kr. Til að setja þessa tölu í samhengi er gott að hafa í huga að hvert 1%-stig í auknu atvinnuleysi, um 2.000 manns, kostar ríkissjóð 6,5 milljarð kr. eða það sama og kostar að tífalda listamannalaunin.

Þessi tillaga mín mun spara hinu opinbera með minna atvinnuleysi, auk þess sem aukin umsvif listamanna skilar miklu fjármunum í ríkissjóð. Einnig væri hægt að hækka listamannalaunin þannig að þau næðu miðgildislaunum í landinu upp í 650 þúsund á mánuði. Að auki yrði til mikil listsköpun öllum hagsbóta og það er ómetanlegt, ekki síst á þessum tímum.

Listin og menningin er það sem gerir okkur að Íslendingum. Listafólk hefur staðið með okkur, nú á þessum erfiðum tímum, en líka alltaf áður. Nú skulum við standa með þeim, þegar á reynir. Tíföldum listamannalaunin strax.

Höfundur er alþingismaður Samfylkingarinnar.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×