Skoðun

Flókið en við­ráðan­legt

Logi Einarsson skrifar

Almannavarnir og heilbrigðisyfirvöld hafa staðið sig sérstaklega vel í ólgusjó liðinna daga, birst landsmönnum á yfirvegaðan og upplýstan hátt og sýnt nauðsynlega festu í viðbrögðum gegn útbreiðslu Covid-19 veirunnar. Þá er það fagnaðarefni að aðilar vinnumarkaðarins og ríkið hafi tryggt að einstaklingar beri ekki fjárhagslegt tjón af veikindum eða sóttkví.

Ég hef þó áhyggjur af fyrirtækjum, ekki síst þeim smærri, sem eru efnahagslífinu gríðarlega mikilvæg, skapa fjölda fólks atvinnu og eru oft lífæð byggðanna. Þau gætu lent í miklum skakkaföllum. Við erum raunar þegar farin að sjá slæmar afleiðingar. Þannig hefur frestun fjölda viðburða t.d. þegar haft áhrif á fyrirtæki í veislu- og gistiþjónustu og tónlistarfólk og aðra skemmtikrafta, sem sjá fyrir sér að öllu eða mestu leyti með verktöku.

Við stöndum því andspænis mjög flóknu verkefni sem við verðum öll að sameinast um. Verja velferð almennings í kólnandi hagkerfi, vaxandi atvinnuleysi, með minnkandi tekjum og stöðugt veikari krónu á sama tíma og við styðjum atvinnulífið og ráðumst í kostnaðarsama uppbyggingu.

En þótt verkefnið sé flókið er það viðráðanlegt, ef stjórnvöld hafa kjark og framsýni til að stíga nægilega fast til jarðar; kynna fjölbreyttaraðgerðir til að milda efnahagshöggið. Til þessa hefur ríkisstjórnin verið of svifasein og óskýr.

Við þurfum að ráðast í fjárfestingar til að örva atvinnulífið, en þá skiptir máli hvernig og hvenær er fjárfest. Mikilvægt er að verkefnin verði af ýmsum stærðum og gerðum og skapi atvinnu fyrir ólíka hópa, konur og karla, með ólíka menntun og reynslu. Það skiptir líka máli hvert fjármagn til framkvæmda er sótt. Forðast ber að selja bankahluti á hrakvirði en nýta frekar hagstæð skilyrði til lántöku. Umfram allt er brýnt að virkja þann kraft sem býr í starfsemi lítilla og meðalstórra fyrirtækja, í iðnaði, matvælaframleiðslu eða ferðaþjónustu, svo dæmi séu nefnd. Samfylkingin hefur þegar lagt fram þingmál um aðgerðir í þágu slíkra fyrirtækja sem ríkisstjórnin gæti sótt innblástur í. Þar leggjum við til að lækka tryggingargjaldið sérstaklega skarpt á minni fyrirtæki þar sem launakostnaður vegur oft þyngst. Við viljum líka styðja fyrirtæki í nýsköpun og þróun svo eitthvað sé nefnt.

Mikilvægast er þó að gleyma ekki þeim áhrifum sem kólnandi hagkerfi getur haft á fólk; sérstaklega það sem býr þegar við mjög kröpp kjör. Nú er tími til að fjárfesta í fólki og jafna lífskjör í landinu. Tryggja öllum aukið öryggi og tryggja fólki á lágum og meðallaunum, ekki síst barnafjölskyldum meiri lífsgæði í allt of dýru landi.

Höfundur er formaður Samfylkingarinnar.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×