Skoðun

Þú tapaðir 50% af öllu sem þú átt á tveimur árum

Ísak Helgi Karvelsson skrifar

Íslendingar heyrið í mér, þið hafið tapað 50% af öllu sem þið eigið á tveimur árum. Fyrir rúmlega tveimur árum, kostaði einn dollari 100 krónur. Dollarinn er alþjóðlegi gjaldmiðillinn og hentar vel fyrir innflutning. Ísland er með litla sjálfstæða framleiðslu svo flest allt af því sem við kaupum og neytum er flutt inn að utan.

Kaupmáttur okkar í alþjóðlegu samhengi er sem sagt búinn að falla um 50%

Það er ekki til betri standard til að miða sig við.

Á svörtu og hvítu

Húsið þitt sem þú átt, sem þú gætir selt fyrir 60 milljónir var virði hálfrar milljón dala fyrir ári.

Í dag færðu 400.000 dali fyrir það.

Þetta er 20% kaupmáttarlækkun á aðeins einu ári.

Maturinn í Bónus er fluttur inn af Íslenskum heildsölum og ég get ekki ímyndað mér að þeir séu ánægðir með það að fjármagn þeirra sé búið að veikjast um 50%

Þessi stóru fyrirtæki í Bandaríkjunum, eru ekki að fara lækka verðið sitt bara af því að greyið krónan sé orðin veikari. Svo þegar við sjáum vöruna í Bónus má búast við að hún verður allt að 50% dýrari.

Það er kannski ekki alveg komið að því strax en það má búast við að það rísi hægt en vandlega upp til að ná að bæta upp þessa 50% veikingu.

Ekki láta ríkisstjórnina spila með krónuna því hún er þannig að spila með líf ykkar.

Ég bið ykkur um að halda haus og fara ekki út og krefja atvinnurekanda þinn um hærri laun því þetta bitnar jafn hart á honum hlutfallslega séð.

Nei, ráðist á orsök vandamálsins og krefjist að kjörnir embættismenn verndi ykkar hagsmuni og passa að halda krónunni stöðugri. Lífið ykkar er bundið þessari blessaðri krónu og það ber að gæta hennar af öllu hjarta.

Hvað þú getur gert

Ef meirihluti stendur ekki með þessu, geta þeir sem trúa þessu og vilja verja sig og sína hagsmuni keypt eins mikið af dollurum og þeir geta.

Spariféð ykkar skal vera í erlendum gjaldeyrisreikningi og hafðu það sem dollara.

Því lengur sem þú bíður því meira taparðu, þeir sem byrjuðu fyrir tveim árum hafa 50% forskot á þig

Við höfum frelsið til að gera það sem við þurfum til að lifa og vernda okkar eigin hagsmuni og ef ríkið dirfist einn daginn að banna okkur það að kaupa erlenda gjaldmiðla þá hreinlega veit ég ekki hvað við getum gert.

Ekki halda að þeir myndu ekki reyna það, þeir hafa gert það áður.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×