Skoðun

Tíma­bundin tæki­færi

Guðmundur Haukur Guðmundsson skrifar

Það þarf ekki að fara mörgum orðum um það áfall sem íslenskt hagkerfi hefur orðið fyrir vegna COVID-19 og þau efnahagslegu áhrif sem veiran hefur á fyrirtæki í landinu, bæði stór og smá. Stjórnvöld leggja nú á ráðin um næsta aðgerðapakka og er þrýst á að sá pakki feli í sér frekari stuðning við fyrirtæki, einkum lítil og meðalstór. Áhugavert er að líta til nágrannaríkja okkar í þessu samhengi og þeirra ríkisaðstoðarkerfa (e. state aid schemes) sem erlend stjórnvöld hafa sett á laggirnar til stuðnings fyrirtækjum þar í landi.

Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) framfylgir ríkisaðstoðarreglum EES-samningsins og taka reglurnar til sérstakra aðstæðna líkt og COVID-19. Hvers kyns ríkisaðstoð eða ríkisaðstoðarkerfi þarf að hljóta samþykki ESA áður en það kemst til framkvæmdar og hefur ESA nýverið stofnað starfshóp til þess að aðstoða íslensk stjórnvöld við að hrinda ríkisaðstoðarkerfum hratt í framkvæmd. ESA og framkvæmdastjórn ESB hafa einnig kynnt tímabundna útvíkkun á ríkisaðstoðarreglum til þess að veita stjórnvöldum aukið svigrúm til að bæta rekstrarhæfni fyrirtækja. Felur þetta meðal annars í sér möguleika á beinum fjárstuðningi, endurgreiðanlegum fyrirgreiðslum, skattaívilnunum eða lánsábyrgðum.

Ólíkt nágrannalöndum okkar hafa íslensk stjórnvöld, þegar þetta er ritað, ekki ennþá nýtt sér þessar tímabundnu útvíkkanir á ríkisaðstoðarreglum EES-samningsins, eða tilkynnt ríkisaðstoðarkerfi formlega til ESA. Á meðan hefur Danmörk fengið sjö ríkisaðstoðarkerfi samþykkt, Noregur fimm og Svíþjóð þrjú. Af 27 aðildarríkjum Evrópusambandsins hafa 23 sett á laggirnar margvísleg ríkisaðstoðarkerfi, og sum ríki fleiri en eitt. Það virðist því ganga hraðar fyrir sig að hrinda slíkum ríkisaðstoðarkerfum í framkvæmd erlendis.

Vissulega er það svo að almennar aðgerðir, sem gilda fyrir öll fyrirtæki, falla ekki undir eftirlit ESA með ríkisaðstoð og geta ríki því hrint þeim í framkvæmd án aðkomu ESA. Hins vegar hefur hlutfall ríkisaðstoðar af landsframleiðslu verið fremur lágt á Íslandi í gegnum tíðina, og talsvert lægra en meðaltal ríkja Evrópusambandsins. Með fyrrgreindum útvíkkunum á ríkisaðstoðarreglum eru möguleikar íslenskra stjórnvalda, til þess að grípa inn í og styðja fyrirtæki í vanda, meiri nú en í fjármálahruninu. Aftur á móti er það einungis tímabundið og ættu stjórnvöld því að skoða þessa möguleika vandlega og hvernig nágrannaþjóðir okkar hafa nýtt þetta tímabundna tækifæri.

Höfundur er verkefnastjóri hjá Samkeppniseftirlitinu. Skoðanir eru höfundar og þurfa ekki nauðsynlega að endurspegla afstöðu eða stefnu Samkeppniseftirlitsins.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×