Skoðun

Bóndakúr

Guðfinna Harpa Árnadóttir skrifar

Að jólahátíðinni afstaðinni finnst okkur mörgum að eftir nokkurra vikna marineringu í lífsins lystisemdum, með söru í annarri hendi og nóa í hinni og jafnvel jólabland á kantinum, sé kominn tími til að þurrka rauðvínssósuna af efri vörinni og svitna út syndunum. Matarplön og bækur um mismunandi hollustumataræði seljast í bílförmum og öll verðum við sérfræðingar í léttum vegan-réttum, lágkolvetna og ketó svo eitthvað sé nefnt. Á sama tíma fyllast líkamsræktarstöðvarnar af Íslendingum með háleit markmið. Samkvæmt viðtölum við þekktustu einkaþjálfara landsins fer svo að fækka í hópnum upp úr miðjum janúar og um þetta leyti árs er aðgengi að hlaupabrettum landsins orðið svipað og á venjulegum októberþriðjudegi. Í sumum tilfellum er nýja matarplanið líka gleymt og grafið.

Það er synd því um þessar mundir fyllast kæliborð verslana af frábærum matarkosti fyrir lkl-ara og ketó-fólk en ýmis þorramatur s.s. lundabaggar, bringukollar, sviðasulta og hrútspungar passa vel inn í slíkt mataræði. Þrjár fyrst nefndu matartegundirnar eru bæði fitu- og próteinríkar en án kolvetna og hrútspungar einstaklega próteinríkir. Þessar afurðir okkar sauðfjárbænda eru auk þess stútfullar af mörgum vítamínum, steinefnum og amínósýrum sem eru okkur mannfólkinu nauðsynleg til vaxtar og viðhalds. Má þar til dæmis nefna að það er heilmikið magnesíum í súrsuðum hrútspungum og sviðasulta er mjög járnrík. Slátrið, sem margir tengja líka þorranum, hentar síður fólki á lágkolvetnakúrum þar sem í því er mjöl. Lifrarpylsa og blóðmör ætti hins vegar að vera hluti af fjölbreyttu fæði allra vegna þess hversu ríkt það er af fjölbreyttum næringarefnum og er hvort tveggja  ofurfæða.

Fyrir þau sem kunna að meta súrsuðu útgáfuna af okkar frábæru afurðum má nefna að súrsunarferlinu fylgja miklir kostir en súrsunin eykur meltanleika og næringargildi matarins. Sýrður matur fer vel í maga og sýringin varðveitir vel t.d. B-vítamín og önnur vítamín og næringarefni í matnum. En þá er ekki allt talið því kalk og önnur næringarefni úr mysunni síast inn í súrmatinn og gera hann enn hollari súran en ósúran. 

Fyrir þá sem ekki neyta dýraafurða eða ætla að framlengja „veganúar“ inn í þorrann má nefna að Hótel Saga, sem leggur áherslu á íslensk hráefni, býður í fyrsta sinn til vegan blóts. 

Bóndakúr snýst þó ekki bara um hollt mataræði. Á hverjum degi stunda bændur um allt land holla hreyfingu við að fóðra sínar skepnur og önnur verk sem fylgja því að reka búið. Eins fylgir starfinu mikil og góð útivist. Á þorranum bæta bændur svo dansi við hreyfinguna og sækja þorrablót hver í sinni sveit til að hlæja að sjálfum sér og kannski ennþá frekar að nágrannanum. Þannig næst rækt í sálina jafnt og líkamann.

Ég hvet ykkur til að halda áramótaheitið út aðeins lengur og heilsa þorranum með því að detta í bóndakúr með hollum þjóðlegum mat, hollri hreyfingu og hlátri.

Ég óska ykkur öllum gleðilegs þorra.

Höfundur er formaður Landssamtaka sauðfjárbænda.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×