Skoðun

Skóla­hald í norðan­verðum Grafar­vogi

Valgerður Sigurðardóttir skrifar

Í norðanverðum Grafarvogi er verið að gera miklar breytingar á skólahaldi. Þessar breytingar voru keyrðar í gegn síðasta haust þvert á vilja íbúa. Breytingar sem miða að því að spara í borgarkerfinu. Reykjavíkurborg er að loka grunnskóla og sameina þrjá aðra. Heilt hverfi verður því af þeirri þjónustu sem það hafði og ekkert annað úrræði kemur í staðin innan hverfis. Allt átti þetta að vera gert í miklu og góðu samráði og að auka gæði náms, gera skólana betri og sterkari, auka átti umferðaröryggi gangandi og hjólandi og bæta þjónustu Strætó ásamt því að nýsköpunarskóli fyrir unglingastig á að taka til starfa.

Fá loforð hafa verið efnd

Foreldrar hafa engar upplýsingar fengið varðandi nýsköpunarskóla, ekki hefur verið boðað til upplýsingafundar frá því að þessi ákvörðun var tekin í október 2019, þrátt fyrir að foreldrar hafi ítrekað verið að kalla eftir því. Engin póstur hefur borist foreldrum varðandi skólahald komandi vetrar, hvenær er skólasetning nýsköpunarskólans ? Foreldrar geta ekki leitað upplýsinga á netinu því heimasíða skólans er í vinnslu og þar inni er því ekkert efni. Foreldrar sem eiga börn á leið í nýsköpunarskóla vita því ekki hvenær skólastarfið hefst eða neitt um það hvernig því verður háttað.

Foreldrar barna sem sækja hina tvo nýju skóla eru í svipuðu svartholi, heimasíðurskólanna eru ekki tilbúnar og því ekki auðvelt að afla sér upplýsinga um komandi vetur.

Ekkert hefur verið gert til þess að bæta þjónustu Strætó fyrir skólabyrjun og engar úrbætur hafa verið gerðar til þess að auka umferðaröryggi gangandi og hjólandi. þrátt fyrir loforð um það. Fjöldi barna er að byrja í skóla í næstu viku og vitað er að þau þurfa að þvera hættulegar götur án þess að gerðar hafa verið nauðsynlegar úrbætur. Þetta er ekki boðlegt og gera þarf ráðstafanir strax sem auka öryggi þessara barna og láta foreldra vita af þeim.

Allt traust farið

Þegar jafn illa er staðið að sparnaðaraðgerðum er bitna á börnum þá er allt traust foreldra farið áður en skólastarfið hefst sem er grátlegt. Sjálfstæðismenn lögðu til vegna COVID að fresta þessum aðgerðum. Því það er öllum ljóst hversu mikilvægt það er að hefja skólahaldið í sátt þegar gerðar eru stórar og óvinsælar breytingar. Hefja skildi breytt skólahald þegar búið er að undirbúa skólastarfið nægilega vel. Auðvita eru foreldrar ekki sáttir þegar hlutunum er hagað svona og ekki staðið við gefin loforð, hjartað í hverju hverfi er skólinn, líka í Grafarvogi.

Höfundur er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×