Skoðun

Blóð­peningar

Örn Sverrisson skrifar

Samkvæmt Íslenskri nútímamálsorðabók eru blóðpeningar peningar sem fengnir eru með því að svíkja, kúga eða framselja í opinn dauðann

Meðal grundvallarhugsjóna Rauða Krossins á Íslandi er verndun lífs og heilsu og að stuðla að virðingu fyrir mannlegu lífi. Samtökin reyna að draga úr þjáningum einstaklinga og taka þá tillit til þarfa hvers og eins, en veita forgang þeim sem verst eru staddir.

Ágæta stjórn og framkvæmdastýra Rauða Krossins á Íslandi!

Hvar eru spilafíklar í þessum grundvallarhugsjónum ykkar? Eiga þær mögulega ekki við um þann hóp þar sem þið græðið á þeim?

Í flestum þeim viðtölum við talsmenn ykkar sem ég hef ýmist lesið eða hlustað á virðist ávallt gleymast að fjalla um “fjáröflun” með spilakössum, þrátt fyrir að hún skili ykkur mestu fjármagni af öllum þeim fjáröflunum sem þið standið fyrir. Hví skyldi það vera, skammist þið ykkar?

Megnið af þessum peningum eru blóðpeningar!

Oftar en ekki er hér um að ræða aleigu veikra einstaklinga (spilafíkla), sem dæla peningum í spilakassanna ykkar, sem þið reyndar kjósið að kalla “söfnunarkassa”, eins og enginn sé morgundagurinn. Því akkúrat þannig er líf virks spilafíkils – það er enginn morgundagur!

Ó nei - þetta eru ekki frjáls framlög. Ykkur ætti að vera orðið það ljóst fyrir allnokkru síðan. Þegar ríkið veitti ykkur leyfi til reksturs “söfnunarkassa” var það af miklu trausti og því fylgir gríðarleg ábyrgð. Mögulega ætti ríkið að kynna sér betur fyrir hverju það var í raun að veita leyfi fyrir. Eitt tel ég þó víst; að ríkið og almenningur í landinu hefur treyst ykkur. Þessa trausts hafið þið notið í áranna rás. Almenningur treystir, þegar þið segið að spilakassar séu hvorki hættulegir né skaðlegir, að þið séuð að segja satt!

Það er mitt mat að þið hafið mistnotað það traust sem almenningur ber til ykkar. Fólkið í landinu treystir ykkur og trúir því að þið séuð í raun MANNVINIR, að starfsemin sé í samræmi við hugsjónir Rauða Krossins og að þið látið ykkur velferð allra varða, en ekki bara sumra.

Á síðustu fjórum árum skilaði rekstur spilakassa ykkur 2,1 milljarði í tekjur. Þið fjallið um það á heimsíðu ykkar og í ályktunum að brotalöm sé í hinum ýmsu kerfum þjóðfélagsins.

Er mögulegt kæra stjórn og framkvæmdarstýra að “fjáröflun” ykkar með spilakössum sé veruleg brotalöm sem skaðar líf og heilsu einstaklinga og fjölskyldur þeirra? Því að á bak við þessa rúmu 2 milljarða sem þið hafið síðastliðin fjögur ár haft í tekjur af spilakössum, fyrir utan öll árin þar á undan,er raunverulegt fólk, eins og skýrt hefur komið fram í fjölmiðlum undanfarið. Eru spilafíklar ekki raunverulegt fólk fyrir ykkur? Eða skiptir það ykkur kannski engu máli, þar sem þið eruð að græða fullt af peningum?

Mögulega eruð þið um það bil að fyrirgera trausti ykkar.

Höfundi er umhugað um líf og heilsu spilafíkla.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×