EM kvenna hefst á Old Trafford Sindri Sverrisson skrifar 23. febrúar 2020 23:00 Það verður leikið á Old Trafford á EM kvenna á næsta ári. Manchester United vann þar 3-0 sigur á Watford í dag. vísir/getty
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta á fína möguleika á að komast á Evrópumótið í Englandi sumarið 2021 eftir að hafa unnið fyrstu þrjá leiki sína í undankeppninni. Komist Ísland í lokakeppnina gæti liðið spilað á sumum af frægustu leikvöngum heims. Nú hefur verið ákveðið að upphafsleikur mótsins fari fram á Old Trafford, heimavelli Manchester United. Enska landsliðið spilar þann leik en það á eftir að koma í ljós gegn hverjum. Leikurinn fer fram 7. júlí en ljóst er að landsliðsþjálfari Englands er öllum hnútum kunnugur á vellinum þar sem mótið hefst: „Þetta verður stórkostlegt,“ segir Phil Neville, þjálfari Englands, sem varð sex sinnum Englandsmeistari með Manchester United, þrisvar bikarmeistari og einu sinni Evrópumeistari. Alls tekur Old Trafford við 76.000 stuðningsmönnum en metfjöldi á stakan leik á EM kvenna er 41.301 áhorfendur á leik Þýskalands og Noregs á EM 2013 í Svíþjóð. Úrslitaleikur EM fer fram á Wembley þann 1. ágúst 2021, rétt eins og úrslitaleikurinn á EM karla sem fram fer 12. júlí í sumar.
EM 2021 í Englandi Mest lesið Kallaði dómarann tík og rúmlega það Körfubolti Verstappen áfram hjá Red Bull Formúla 1 Atli og Eiður í KR Fótbolti Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Fótbolti Chicago Bears leita nýrra leiða til að tapa leikjum Sport Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Fótbolti Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Fótbolti Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Fótbolti Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Enski boltinn Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Enski boltinn Fleiri fréttir Atli og Eiður í KR Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Steve Cooper látinn taka pokann sinn hjá Leicester Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Hákon mættur aftur til leiks Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Jafnað í blálokin í uppgjöri Keflvíkinga í Hollandi Amanda lagði upp í dýrmætum sigri og Kolbeinn nær toppnum Framarar sótt fjóra bita í næstu deild „Hefurðu enga sómakennd?“ Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Celta sótti jafntefli gegn tíu Börsungum Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Bodø/Glimt með langþráðan sigur Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Gamla konan áfram taplaus Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Jóhann lagði upp langþráð mark Ævintýri Róberts og félaga heldur áfram Ingibjörg og Hafrún nálgast Emilíu Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Sjá meira