Innlent

Lést í húsbílabrunanum

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Lögregla vinnur að rannsókn málsins.
Lögregla vinnur að rannsókn málsins.

Líkamsleifar sem taldar eru af manni á fertugsaldri fundist í rústum húsbíls sem brann í landi Torfastaða í Grafningi í Árnessýslu. Lögreglan á Suðurlandi biður þá sem telja sig hafa orðið vara við eld eða reyk á þessum slóðum í nótt eða framan af degi að hafa samband.

Greint var frá brunanum í dag en lögreglu barst tilkynning um mikið brunnin húsbíl skömmu eftir hádegi. Tilkynnandi taldi mögulegt að maður hafi verið í bílnum þegar eldurinn kom upp.

Rannsókn leiddi í ljós að í bílnum voru líkamsleifar sem taldar eru af manni á fertugs aldri og hefur aðstandendum hans verið tilkynnt um málið. Hinsvegar liggur fyrir að nokkurn tíma mun taka að staðfesta, með fullri vissu, auðkenni mannsins og eru aðstandendur meðvitaðir um verklag við þá vinnu, að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi.

Að rannsókninni í dag unnu, auk lögreglumanna af Suðurlandi, fulltrúar tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, réttarmeinafræðingur og fulltrúar kennslanefndar ríkislögreglustjóra. Eldsupptök eru til rannsóknar og eru ókunn. 

Lögreglan á Suðurlandi biður þá sem telja sig hafa orðið vara við eld eða reyk á þessum slóðum í nótt eða framan af degi eða búa yfir upplýsingum sem þeir telja að kunni að skipta máli við rannsóknina að hafa samband í síma 444-2000, á facebook eða með tölvupósti á [email protected]




Fleiri fréttir

Sjá meira


×