Skoðun

Herra Hnetu­smjör prófar ópíóða

Rannveig Borg skrifar

Í spjalli hjá Sölva Tryggvasyni deildi Herra Hnetusmjör (Árni Páll Árnason) sögu úr lífi sínu áður en hann varð edrú fyrir nokkrum árum. Þá hafði hann prófað ópíóðan oxycodine.

Herra Hnetusmjör lýsir því að þetta hafi virkað sem „bara pilla“. En þetta eru hættulegustu efnin á markaðnum eða „ógeðslega sterk“ eins og Herra Hnetusmjör orðar það.

Ópíóðar og þá sérstaklega oxycodone hafa verið mikið í fréttum í tengslum Bandaríkín þar sem talað er um ópíóðafaraldur. Talið er að um 3.6 % fullorðinna Bandaríkjamanna hafi neytt ópíóða á síðasta ári en prósentan er um 1.2% á heimsvísu[3].

Hvað eru ópíóðar? Annars vegar nátturuleg ópíumskyld lyf eins og morfín og kódein eða tilbúnar afleiður af morfíni til dæmis heróín, fentanýl og oxycodone[2].

Ópíoðar hafa aðallega tvenns konar áhrif annars vegar minnka sársauka og eru ópíóðar á lista WHO yfir nauðsynleg lyf (e. essential [1] medicine) og hins vegar að virkja verðlaunastöðvar heilans og orsaka vellíðan[2].

Aukaáhrif ópíóða geta verið flökurleiki og meltingartruflanir og aukinn sársauki þ.e. þegar viðkomandi hættir notkun lyfjanna finnur hann meira fyrir sársauka en áður en notkun lyfjanna hófst[2].

Þegar einstaklingur er orðinn líkamlega háður lyfjunum og hættir skyndilega notkun þeirra geta fráhvarfseinkenni verið mjög skæð[2]. Herra Hnetusmjör talar um verstu fráhvarfseinkenni sem hann hafði upplifað.

Til lengri tíma geta ópíóðar verið mjög vanabindandi. Hlutfall þeirra sem verða háðir lyfseðilsskyldum ópíóðum eykst. Þá er talið að um 2-6% þeirra sem ávísað er ópíóðum sem verkjalyfi þrói með sér lyfjafíkn[5]. Ennfremur er mikil aukning á misnotkun lyfseðilsskyldra ópíóða og notkun mjög sterkra ólöglegra ópíóða eins fentanýl sem er 50-100 sinnum sterkari en morfín[4][6].

Lyfin geta einnig valdið öndunarbælingu sem í nægilegu magni getur valdið dauða[2]. Þá talar WHO um sérstaklega hættulegt sé að neyta ópíóða með öðrum öndunarbælandi efnum eins og til dæmis benzódíazepín eða áfengi[6]. Á síðustu árum hefur ótímabærum dauðsföllum af völdum ofskömmtunar fjölgað – nú á tímum COVID-19 hefur ólöglegt fentanýl oftar en ekki komið við sögu[4].

WHO hefur ráðlagt þjálfun í naloxone notkun og dreifingu til einstaklinga sem geta orðið vitni af ofskömmtun ópíóða. Naloxone getur bjargað lífum eftir ofskömmtun ef það er gefið á réttan hátt[6].

Aukin hætta af ópíóðum er ekki einskorðuð við Bandaríkin. Valgerður Rúnarsdóttir yfirlæknir á Vogi sagði í nýlegu viðtali að 185 manns væru í meðferð við ópíóðafíkn á göngudeild á Vogi og hafi aldrei verið fleiri og að neyslan hafi aukist mikið á Íslandi síðustu ár[7].

Sagan Herra Hnetusmjör prófar ópíóða endaði vel. Það eru ekki allir þetta heppnir. Í ágúst á þessu ári létust tveir 15 ára unglingar í Zollikerberg[8] (sem er Garðabær Zurichsýslunnar) eftir að hafa prófað hóstasaft með kódeini í bland við benzódíazepín (Xanax). Eins og fyrir Herra Hnetusmjör gerðu þeir sér væntanlega ekki grein fyrir hættunni enda „bara hóstasaft“.

Höfundur er starfandi lögfræðingur í Sviss, og nemi í alþjóðlegri fíknfræði við King´s College London.

Heimildir:

1. https://www.who.int/publications/i/item/WHOMVPEMPIAU2019.06

2. ttps://wdr.unodc.org/wdr2019/en/depressants.html

3. https://wdr.unodc.org/wdr2020/field/WDR20_Booklet_2.pdf

4. https://wdr.unodc.org/wdr2020/en/exsum.html

5. https://onlinelibrary.wiley.com/doi/full/10.1111/jcpt.13114

6. https://www.who.int/topics/substance_abuse/en/

7. https://www.ruv.is/frett/2020/09/07/hugsi-yfir-tviskinnungi-i-heimsbarattunni-gegn-covid?fbclid=IwAR3ugcVaNkMLIXem4no67f_YL18kTK1cBuhHatAJUVsgHE8I2q5SC5ILxnU

8. https://www.watson.ch/amp/!327904670?fbclid=IwAR0L55JGB2K2gMv4HezttKHxRVhAj1lsKKlRWvik6d1cc8xpkQfClgm5fAU




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×