Innlent

Handtóku karlmann sem sýndi grófa líkamsárás á Facebook

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Skjáskot úr myndbandinu sem hefur verið í birtingu á Facebook í vel á annan sólarhring.
Skjáskot úr myndbandinu sem hefur verið í birtingu á Facebook í vel á annan sólarhring.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í gær tæplega þrítugan karlmann sem birti myndband af sér á Facebook þar sem hann gengur í skrokk á öðrum manni. Myndbandið er enn í birtingu á Facebook nú rúmum sólarhring eftir að það var sett á samfélagsmiðilinn.

Um er að ræða tveggja og hálfs mínútna langt myndband þar sem karlmaðurinn, sem er lærður í bardagaíþróttum hvar hann hefur unnið til verðlauna, virðist refsa tvítugum karlmanni með spörkum og höggum. Svo virðist sem árásarmaðurinn telji þann yngri vera að dreifa ósönnu slúðri um konu árásarmannsins og föður þess yngri, dæmdan fíkniefnainnflytjanda.

Biður um vægð

Sá yngri biður árásarmanninn endurtekið um að láta af spörkum sínum og höggum sem mörg hver eru beint í höfuð mannsins. Þriðji aðili tekur allt upp á síma og segir árásarmaðurinn á einum tímapunkti ákveðinn: „Þetta myndband fer á netið!“.

Þá segir hann tökumanninum að nauðga yngri karlmanninum, fara inn á klósett og „ríða honum í rassinn“ - eins og árásarmaðurinn kemst að orði. 

Á Facebook-síðu árásarmannsins má sjá annað nýlegt myndband þar sem hann er að berjast ber að ofan við karlmann úti á götu.

Af fullum þunga í handtökur í slíkum málum

Guðmundur Páll Jónsson, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir í samtali við Vísi að árásarmaðurinn hafi verið handtekinn í gær. Aðilar í málinu hafi verið yfirheyrðir og málið sé til skoðunar.

„Við förum í fullan þunga í að hand­taka geranda í slíkum málum,“ sagði Guðmundur Páll við Fréttablaðið í gær sem fyrst greindi frá málinu.

Aðspurður hvort gerð verði krafa til árásarmannsins að hann taki myndbandið úr birtingu segir Guðmundur Páll málið í skoðun.

Deilur karlmannanna tveggja hafa haldið áfram á Facebook í morgun. Þannig heldur sá yngri áfram að birta myndir og myndbönd og ögra árásarmanninum. Segist hann varla vera með skrámu og hvetur árásarmanninn til að koma einan næst þegar hann vilji ráðast á sig.

Veistu meira um málið? Vísir tekur við ábendingum, myndum og myndböndum á [email protected]. Fullum trúnaði er heitið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×