UEFA: Keppnistímabilinu verði lokið 30. júní Sindri Sverrisson skrifar 17. mars 2020 20:00 Ekki er enn ljóst hvort Jordan Henderson fær að hefja Englandsmeistarabikarinn á loft fyrir lok leiktíðar. vísir/getty
UEFA, knattspyrnusamband Evrópu, hefur tilkynnt að stefnt sé að því að keppnistímabilinu í vetrardeildum álfunnar verði lokið 30. júní. Í tilkynningu frá UEFA segir að um þetta hafi náðst víðtæk sátt. Vegna óvissunnar sem útbreiðsla kórónuveirunnar skapar er hins vegar sleginn sá varnagli að markmiðið um 30. júní velti á því að staðan batni og hægt verði að byrja að spila aftur fótbolta áður en langt um líður. Áður hafði verið tilkynnt að Evrópumóti landsliða, sem hefjast átti í júní, yrði frestað um eitt ár. UEFA hefur einnig samþykkt að hnika til leikdögum í forkeppnum Meistaradeildar Evrópu og Evrópudeildar í sumar, eins og þurfa þykir dragist tímabilið enn frekar á langinn. Þannig er ljóst að UEFA útilokar ekki að halda tímabilinu áfram fram yfir 30. júní. Í kvöld áttu lið Manchester City og Real Madrid að mætast, sem og Juventus og Lyon, í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Ákveðið var í síðustu viku að fresta öllum leikjum í keppninni um óákveðinn tíma. Keppni í ensku úrvalsdeildinni hefur verið frestað til 4. apríl hið minnsta, og svipaða sögu er að segja um aðrar knattspyrnudeildir Evrópu.
Enski boltinn Spænski boltinn Ítalski boltinn Franski boltinn Þýski boltinn Tengdar fréttir UEFA staðfestir að leik Íslands og Rúmeníu verði frestað þar til í júní Knattspyrnudagatal næstu tveggja ára er á fleygiferð eftir risafund UEFA í dag. 17. mars 2020 15:18 Mest lesið Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Fótbolti Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Enski boltinn „Hefurðu enga sómakennd?“ Fótbolti Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Enski boltinn ÍBV kærði Hauka: „Hvernig gæti HSÍ verið annarrar skoðunar en reglurnar?“ Handbolti Fulltrúar ÍBV og HSÍ hafi mætt seint: „Í mínum huga er þetta algjör þvæla“ Handbolti Áður óbirt efni frá heimsókn landsliðsins í vinsælasta þátt Bandaríkjanna Körfubolti Lokað á útsendingu frá generalprufu Íslands Handbolti Verstappen heimsmeistari fjórða árið í röð Formúla 1 Ætla flokkarnir að reisa ný heimili fyrir landsliðin? Sport Fleiri fréttir Atli og Eiður í KR Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Steve Cooper látinn taka pokann sinn hjá Leicester Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Hákon mættur aftur til leiks Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Jafnað í blálokin í uppgjöri Keflvíkinga í Hollandi Amanda lagði upp í dýrmætum sigri og Kolbeinn nær toppnum Framarar sótt fjóra bita í næstu deild „Hefurðu enga sómakennd?“ Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Celta sótti jafntefli gegn tíu Börsungum Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Bodø/Glimt með langþráðan sigur Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Gamla konan áfram taplaus Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Jóhann lagði upp langþráð mark Ævintýri Róberts og félaga heldur áfram Ingibjörg og Hafrún nálgast Emilíu Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Sjá meira
UEFA staðfestir að leik Íslands og Rúmeníu verði frestað þar til í júní Knattspyrnudagatal næstu tveggja ára er á fleygiferð eftir risafund UEFA í dag. 17. mars 2020 15:18