Skoðun

Heimsóknabann og möguleg samskipti

Birgir Guðjónsson skrifar

Corona veiran veður yfir heiminn og jafnvel ráðherrar og þingmenn smitast.

Meiri raunsæisblær hefur orðið á umræðum forystumanna hér og augljóst að veirunni verður ekki bannað að koma. Nú er jafnvel óskað eftir meiri dreifingu. Viðurkennt er að fyrir meginþorra fólks er þetta einkennalítil sýking. Hér er sífellt vitnað í ráð vísindamanna.

Með nútíma samskiptatækni og alþjóðlegum fjölmiðlum er auðvelt að fylgjast með mjög mismunandi ráðgjöf vísindamanna og viðbrögðum stjórnenda um allan heim.

Skoðanamunur er um hópastærð, lokanir á skólum og veitingastöðum og fjarlægð.

Bretar mæla aðeins gegn stórum hópum en almennt talað um 100 manns. Dr. Fauci forstóri CDC (Sýkingarvarna BNA) ráðleggur aðeins 50, Trump forseti í sínum um umsnúningi vill nú gera betur og segir 10 , Genfborg aðeins 5.

Um fjarlægð er notað á ensku félagsleg fjarlægð (social distance) yfirleitt 2 metrar en sést upp í 4 metra.

Samkomubann er yfirleitt mánuður en talað um allt að þrjá mánuði.

Lokanir eru mismundandi í hverju landi hvað snertir t.d. skóla, heimili og veitingastaði.

Hér var tilkynnt um samkomubann með góðum fyrirvara. Ég er almennt sáttur við fyrirmæli Almannavarna um stærð hóps, tímalengd, og fjarlægð og mun ganga um með tommustokk!

Ég verð hinsvegar ætíð ósáttur við harkaleg fyrirvaralaust heimsóknarbann á hjúkrunarheimili án nokkurs möguleika á skýringum til sjúklinga og undirbúnings og könnun á samskiptamöguleikum. Bannið á eingöngu við ættingja en ekki starfsfólk og þjónustuaðila sem geta rápað inn og út án nokkurra takmarkanna. Það þarf ekki lækni til að sjá Þetta stenst ekki neinar reglur um smitvarnir og á sér enga hliðstæðu annars staðar í heiminum.

Takmarkanir á heimsóknum hefðu verið sjálfsagðar í samvinnu við ættingja.

Á blaðamannafundum hafa bæði Bandaríkjaforseti og forsætisráðherra Bretlands sagt, að fyrirmælum mestu vísindamanna heimsins, standandi sér við hlið, að ónauðsynlegar (unnecessary) heimsóknir ætti að forðast. Danir tala um takmarkaðar (begrænsede) heimsóknir.

Umræður hafa orðið hér á hættu á einangrun eldra fólks og jafnvel hættum samfara því.

Sjúklingar á hjúkrunarheimilum er mjög mismunandi á sig komnir andlega og líkamlega. Þetta rakalausa bann kemur verst niður á Alsheimer sjúklingum með dvínandi minni sem jafnvel geta ekki lengur notað síma. Þeim er jafnvel meinað að sjá maka og lífsförunauta til allt að 70 ára og kannski þann eina sem þeir ennþá þekkja. Þetta verðu þá alger félagsleg einangrun. Brosandi starfsfólk kemur ekki staðinn.

Vegna hringinga og hvatningu grátklökkra ættingja þessara sjúklinga krefst ég þess að þeir  „vísindamenn“ sem hafa ráðlagt þetta stígi fram og réttlæti.

Svarið mun fara í sögubækur læknisfræðinnar.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×