Bókasöfnum, sundlaugum og húsdýragarðinum lokað Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 23. mars 2020 11:26 Kóparnir í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum fá ekki gesti næstu vikurnar. Vísir/Vilhelm
Borgarbókasafnið verður lokað frá og með þriðjudeginum 24. mars í takt við hertar takmarkanir í yfirstandandi samkomubanni. Eins og sakir standa er reiknað með því að opna dyr safnanna aftur og gangsetja bókabílinn þriðjudaginn 14. apríl. Öllum viðburðum hefur verið frestað um sinn að því er segir í heimasíðu safnsins. Von er á frekari upplýsingum frá Borgarbókasafninu varðandi starfsemi safnanna á meðan lokun stendur, útlán, frátektir, sektir og fleira í þeim dúrnum. Minnt er á rafbókasafnið. Lokunin er í takti við aðrar lokanir á höfuðborgarsvæðinu vegna samkomubannsins sem miðast við tuttugu manns og tekur gildi á miðnætti. Sundlaugar í Reykjavík og á höfuðborgarsvæðinu verða lokaðar frá og með morgundeginum og sama gildir um söfn Reykjavíkurborgar, Listasafn Reykjavíkur og Borgarsögusafnið. Engin hátíð á vegum borgarinnar er á dagskrá á næstu fjórum vikum og verður staðan metin varðandi Barnamenningarhátíð og aðrar hátíðir dragist samkomubannið á langinn. Skíðalyftur í hverfum verða lokaðar, skíðasvæði sömuleiðis, ylströndin í Nauthólsvík, Skautahöllin í Laugardal og Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn. Íþróttafélög gefa út eigin tilkynningar um tilhögun íþróttaæfinga í samkomubanni en þær eru í algjöru lágmarki og falla víðast hvar niður.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bókmenntir Söfn Reykjavík Samkomubann á Íslandi Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Innlent Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Innlent Sundhnúksgígaröðin að verða búin Innlent Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum Erlent Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Innlent Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Innlent Vargöldin á Haítí versnar hratt Erlent Engar sýnilegar breytingar á hraunflæði eða krafti Innlent „Þetta var mjög skrýtin stemning“ Erlent Fleiri fréttir Biskup fagnar hækkun sóknargjalda Sundhnúksgígaröðin að verða búin Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Breyting á eldgosinu og stór dagur í Karphúsinu Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Minni virkni í miðgígnum Vextir og kosningar í Sprengisandi Réttindalausir stútar á ferðinni Engar sýnilegar breytingar á hraunflæði eða krafti Ók á ljósastaur við Grensásveg Eldur kviknaði í bíl í Mosfellsbæ Læknar fara þokkalega bjartsýnir inn í morgundaginn Viðreisn stærst samkvæmt nýrri kosningaspá en mjótt á munum Sjálfstæðisflokkurinn hafi lagt til niðurskurð á hverju ári Hefur gefið Landgræðslunni 26 milljónir króna í formi fræja Mikilvægt að Bláa lónið geti opnað sem fyrst Hvetja íbúa Suðurnesja til að spara heita vatnið Varnaraðgerðir í Svartsengi og umdeild yfirhalning hjá Jaguar Ísland virðir handtökuskipan á hendur Netanjahú Fjölmiðlabann í kjaradeilu kennara Hildur hnýtir í Sigurð og sakar hann um ýkjur Straumar valda álagi á varnargarða og staðan viðkvæm Byggt og byggt á Suðurlandi og það þarf að byggja enn meira KÍ segir ummæli Ingu Rúnar „rannsóknarefni“ „Við gerum aldrei neitt nema með fullu samþykki“ Bein útsending: Hvar eru umhverfis- og loftslagsmálin í kosningabaráttunni? Kennarasambandið sýni kennurum „alvarlega lítilsvirðingu“ Spennandi og sögulegar kosningar: Fjórir flokkar berjast fyrir lífi sínu í fallbaráttu Sjá meira