Bíó og sjónvarp

Smárabíó opnar 4. maí

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Bíóbekkir Smárabíós verða að öllum líkindum ekki svona þétt setnir þegar það opnar aftur 4. maí.
Bíóbekkir Smárabíós verða að öllum líkindum ekki svona þétt setnir þegar það opnar aftur 4. maí. mynd/mummi lú

Smárabíó í Kópavogi opnar þann 4. maí, sama dag og tilslakanir á samkomubanni taka gildi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá kvikmyndahúsinu.

Lögð verður áhersla á það að tryggja gestum möguleikann á því að hafa tvo metra á milli sæta. Þá verða aldrei fleiri en 50 manns í hverjum sal. Þann 4. maí verða samkomutakmarkanir hækkaðar úr 20 í 50.

„Við höfum fengið mikið af fyrirspurnum um hvenær við munum opna á ný, og fundið fyrir söknuð viðskiptavina að geta kíkt í bíó. Það er því ánægjulegt að geta tilkynnt að við munum opna dyrnar þann 4. maí,“ er haft eftir Ólafi Þór Jóelssyni, framkvæmdastjóra kvikmyndahúsa Senu.

Í tilkynningunni segir einnig að á meðan kvikmyndahúsið var lokað hafi tíminn verið nýttur til að tryggja upplifun bíógesta verði sem best í nýju umhverfi.

Þá kemur fram að gestir komi til með að geta nýtt sér snertilausa þjónustu, bæði þegar kemur að því að kaupa bíómiða og veitingar.

„Mikil áhersla er lögð á þrif og sótthreinsun og boðið verður upp á hanska fyrir þau sem óska þess,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.