Skoðun

Þekkingin skiptir öllu máli

Guðmundur Andri Thorsson skrifar

Við í þingflokki Samfylkingarinnar höfum lagst á árarnar með stjórnvöldum við að greiða málum ríkisstjórnarinnar í tengslum við Kófið leið í gegnum þingið.

Við höfum unnið þessi mál í nefndum í góðri samvinnu við þingmenn stjórnarmeirihlutans, sem að vísu hafa ekki samþykkt sumar breytingatillögur okkar. Í allri þessari vinnu reynum við að koma auga á það sem þarf að gera betur og koma með tillögur til úrbóta: má þar nefna mál okkar um að atvinnuleysisbætur verði hækkaðar svo að þær nálgist framfærsluviðmið.

Við reyndum líka að taka höndum saman við Pírata og Flokk fólksins við að finna leiðir til að láta lögbundnar kauphækkanir þingmanna og annarra hópa ekki koma til framkvæmda.

Á leiðinni er mál frá okkur um að taka á fjárhagsvanda sveitarfélaganna sem hafa ærnar skyldur í nærþjónustunni.

Og í liðinni viku lögðum við fram mál sem snertir námsmenn sérstaklega.

Í tillögu okkar eru ýmsar aðgerðir: við viljum að námsmenn fái rétt til atvinnuleysisbóta í sumar og LÍN bjóði upp á framfærslustyrki sem stúdentar í hlutastarfi geti hagnýtt sér. Við stingum upp á endurgreiðslu á ferðakostnaði vegna yfirstandandi annar erlendis og niðurfellingu á lánsupphæð náist ekki að ljúka önninni. VIð viljum tryggja starfsnám iðnnema með auknu fjármagni í vinnustaðanámssjóð svo að fleiri meistarar geti tekið nema; öll erum við sammála um nauðsyn þess að beina ungu fólki í iðnnám, ekki síst þeim sem þar njóta sín betur en oní bókum. Við viljum líkaniðurgreiða sálfræðiþjónustuog efla geðheilbrigðishjálp fyrir námsmenn enda kvíði og margvíslegir kvillar honum tengdir stórfellt vandamál hjá ungu fólki, og getur haft alvarlegar afleiðingar í för með sér. Og loks viljum við efla styrktarsjóði Rannís.

Námsmenn eru hópur sem ekki má gleymast í Kófinu. Raunar er erfitt að tala um námsmenn sem einn sérstakan hóp: þetta er fólk af öllum stærðum og gerðum sem á það sammerkt að vera á þessum stað í lífinu, að afla sér þekkingar á einhverjum sviðum, sem á síðar eftir að nýtast viðkomandi einstaklingum og væntanlega samfélaginu öllu á margvíslegan hátt. Námsmenn eru fjölskyldufólk og einhleypir – foreldrar (raunar um 34%) og barnlaust fólk; afreksfólk og meðaljónar-og-gunnur, og allt þar á milli.

En mikilvægt er að hafa í huga að hjá þessu fólki, námsmönnum, eru vaxtarsprotarnir sem við setjum ekki síst traust okkar þegar við vinnum okkur út úr Kófinu, með þekkinguna að vopni, sköpunargleðina við að búa til alls konar verðmæti og endurnýjunarkraftinn sem fylgir ungu og hugmyndaríku fólki sem er fundvíst á lausnir við margháttum krefjandi úrlausnarefnum okkar tíma. Þekkingin skiptir þar öllu máli.

Höfundur er þingmaður Samfylkingarinnar.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×